Bæjarstjóri getur ekki leyst klúður meirihluta bæjarstjórnar Heimir Már Pétursson skrifar 20. janúar 2014 19:45
Bæjarstjórinn í Kópavogi segir það ekki í hans verkahring að útbúa viðauka við fjárhagsáætlun bæjarins svo tillaga minnihlutans með stuðningi Gunnars Birgissonar í húsnæðismálum nái fram að ganga. En lögfræðingur Sambands íslenskra sveitarfélaga segir slíkan viðauka nauðsynlegan.Guðjón Birgisson lögmaður hjá Sambandi sveitarfélaga segir ótvírætt að ekki sé hægt að sækja útgjöld til bæjarsjóðs án viðauka við fjárhagsáætlun og úr því verði að bæta vegna tillögunnar sem samþykkt var í bæjarstjórn Kópavogs í síðustu viku. Þá þurfi eftirlitsnefnd sveitarfélaga í aðlögun, eins og Kópavogsbær sé, að samþykkja slíkar breytingar. Oddviti Samfylkingarinnar telur að bæjarstjóra beri að leggja fram umræddan viðauka. „Í fyrsta lagi þá eru til peningar til að kaupa fimmtán félagslegar leiguíbúðir og það þarf að setja starfsmenn í það að byrja að kíkja í kringum sig og fara að versla. Og það sem mestu skiptir þá þarf bæjarstjóri í millitíðinni að leggja fram viðauka við fjárhagsáætlun til þess að við fáum formlegar heimildir til þessara fjárútláta,“ sagði Guðríður Arnardóttir í hádegisfréttum Bylgjunnar. Bæjarstjórinn segir að engin greinargerð hafi fylgt tillögu minnihlutans og Gunnars Birgissonar og það sé ekki í hans verkahring að koma tillögu minnihlutans áfram. „Eins og þetta er lagt fram þá skortir lagaheimild fyrir því að ég hefji þessa vinnu. Í ljósi þess ber þessum fulltrúum sem þarna voru að verki að leysa úr sínu eigin klúðri. Ég get ekki gert það,“ segir Ármann Kr. Ólafsson bæjarstjóri. Kópavogur standi vel og eigi nú þegar 400 félagslegar íbúðir og komi næst á eftir Reykjavík í þeim efnum með fjölda íbúða á hverja þúsund íbúa. En Guðfríður sagði í hádegisfréttum að bærinn væri með heimildir í fjárhagsáætlun til að kaupa 15 íbúðir nú þegar. „Hvað varðar það að við getum nú þegar hafið kaup á fimmtán íbúðum þá er hún væntanlega að vísa til þess að við erum nú að byggja sex íbúðir og erum að byrja að byggja fjórar til viðbótar og þá ertu kominn með tíu. Og ég gat ekki keypt fimm íbúðir í fyrstu vikunni í janúar. Það er alveg ljóst,“ segir Ármann.
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Innlent NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Erlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Innlent Fleiri fréttir „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Sjá meira