„Meira spurning um hvenær þetta fer í framkvæmd heldur en hvort“ Stefán Árni Pálsson skrifar 21. janúar 2014 12:00 Kynning um háhraðalest frá Keflavík til Reykjavík fór fram í dag. mynd/samsett
Í dag fór fram kynning Kadeco á lest milli Keflavíkur og Reykjavíkur í Officeraklúbbnum á Ásbrú. Þar kom meðal annars fram að að undirbúningstími framkvæmdarinnar yrði 4 ár og framkvæmdatíminn sjálfur 3 ár. Hægt væri að taka lestina í notkun árið 2022 ef farið yrði af stað á næsta ári. Gert er ráð fyrir 3-4 milljónum farþega á ári 2023 en 5-6,5 milljónum ársfarþega 10 árum síðar. Forsendur verkefnisins eru að ferðatíminn verði innan við 20 mínútur að hámarki og ferðatíðni verði á 15 mínútna bili á annatíma. Gert er ráð fyrir tvöföldum teinum eftir yfirboði frá Keflavík að Hafnarfirði. Þaðan yrði einfaldur teinn um göng frá Straumsvík að miðborg Reykjavíkur. Lengd leiðar yrði 46 kílómetrar, þar af 12,3 kílómetrar í göngum. Meðalhraði lestarinnar yrði u.þ.b. 180 km/klst og að hámarkshraði rúmlega 200 km/klst. Fjórar lestareiningar eiga að geta í upphafi annað allt að 1.000 manns á klukkustund í hvora átt. Fram kom á kynningunni að möguleiki sé á að a.m.k. tvöfalda þá getu síðar. Kostnaður mun vera á bilinu 95-105 milljarðar króna.Líklegur farþegafjöldi árið 2023:Flugfarþegar í lest á bilinu 2,3(50% hlutdeild) til 3 milljónir (65% hlutdeild). Í dag eru erlendir farþegar um 65% allra farþega en gera má ráð fyrir að það hlutfall fari hækkandi.Skiptifarþegar í lest ekki reiknaðir með en heildarfjöldi þeirra um flugvöllinn er áætlaður 1,9 milljón, 5% þeirra væru 190 þúsund farþegar báðar leiðir.Farþegar, aðrir en flugfarþegar, má áætla 0,7-1,1 milljón miðað við að 1.000-1.500 manns nýti sér lestina á dag eða 500-750 í hvora átt frá Suðurnesjum og Reykjavíkursvæðinu. Heildarfarþegafjöldi gætu orðið 3-4 milljónir. Fram kom í kynningunni að brúttótekjur verkefnisins gætu verið 10 milljarðar á ári miðað við 4.000 króna fargjald og 2,5 milljónir farþegar á ári.Fram kom á kynningunni að samfélagsleg áhrif á Suðurnes gætu orðið gríðarleg. Þá var talað um að jöfnun á fasteignaverði á Suðurnesjum og höfuðborgarsvæðinu. Lestarstöðvar hafa oft afar jákvæði áhrif á verðmæti fasteigna í nágrenni þeirra. Sýnt var fram á nýlegt dæmi frá London um nýja lestarstöð þar sem verð hækkaði í nágrenninu um 30% á í kjölfar ákvörðunar um slíka framkvæmd árið 2008. Í grein í the Telegraph er síðan spáð 40% hækkun til viðbótar fram að opnun stöðvarinnar árið 2018. „Ég held að það sér meira spurning um hvenær þetta fer í framkvæmd heldur en hvort,“ segir Runólfur Ágústsson, fyrrverandi rektor Háskólans á Bifröst og forystumaður samráðshópsins sem fer með verkefnið, í samtali við Vísi. „Við erum að reikna okkur í gegnum það hvort það sé tímabært að fara í þessa aðgerð núna. Við höfum orðið nokkuð góða mynd af stofnkostnaðnum og tekjum. Við eigum síðan von á tölum erlendis frá varðandi rekstarkostnaðinn og reiknum með því að ljúka þessari undirbúningsvinnu um miðjan febrúar.“ Kostnaður við verkefnið gæti verið frá 95-105 milljarðar íslenskra króna. „Það sem við erum að gera í dag er að kynna viðskiptaáætlun fyrir fjárfestum og framhaldið því enn nokkuð óljóst.“ Gert er ráð fyrir 10 milljarða brúttótekjum á ári ef yrði af framkvæmdinni. „Hreinar tekjur fara síðan eftir því hver rekstrarkostnaðurinn er og við höfum ekki birt neinar tölur um það, það er ekki tímabært. Rekstrarkostnaður ræður mjög miklum um tekjur. Það sem hefur breyst er tvennt, annarsvegar tæknin er orðin bæði betri og ódýrari en áður. Síðan hefur farþegafjöldi um flugvöllinn vaxið verulega. Kostnaður hefur því minnkað og tekjumöguleikinn orðinn meiri.“
Mest lesið Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri Innlent Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Erlent Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Innlent Vasaþjófnaður aukist að undanförnu Innlent „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Innlent Fleiri fréttir „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Skipulagt niðurbrot á réttindum launafólks hafi náð til Íslands „Konur upplifa ekki öryggi í íslensku samfélagi“ Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Sjá meira