Mikil ánægja með Áramótaskaupið Kjartan Atli Kjartansson skrifar 21. janúar 2014 11:58 Skaup ársins 2013 sló í gegn. Mynd/RÚV
Yfirgnæfandi meirihluti landsmanna er ánægður með Áramótaskaup síðasta árs. Þetta kemur fram í könnunn MMR sem framkvæmd var á dögunum 9. – 15. Janúar. 81,3 prósent þeirra sem tóku afstöðu fannst skaupið gott. Til viðmiðunar má benda á að einungis 33,2% þeirra sem tóku afstöðu í samskonar könnun í fyrra þótti það skaup ársins 2012 gott. Aðeins 9% þeirra sem tóku afstöðu þótti skaupið slakt, samanborið við 48,1% svarenda í könnunni í fyrra. Ungt fólk var ánægðara með skaupið en það eldra. 84,4% svarenda á aldurbilinu 18-29 ára þótti skaupið gott en 74,7% þeirra sem eru eldri en fimmtugir svöruðu á sama hátt. Skaupið var þó vinsælast hjá fólki á bilinu 30-49 ára, en 86,6% fólks sem tók afstöðu í könnunni líkaði skaupið. Sé tekið mið af stjórnmálaskoðunum kemur í ljós að Sjálfstæðismönnum líkar verst við skaupið. 11,1% fannst skaupið slakt og 77,8% fannst það gott. Til samanburðar þóttu 8,57% þeirra sem styðja aðra flokka en Sjálfstæðisflokkinn skaupið slakt og 83,6% þótti það gott. Alls svöruðu 981 einstaklingur og var úrtakið valið handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR. Í spilaranum hér fyrir neðan er lokalag skaupsins, Springum út, með Steinda Jr. og StopWaitGo. Lagið hefur notið mikilla vinsælda síðustu vikur og er nú í áttunda sæti Íslenska listans.
Mest lesið Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri Innlent Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Erlent „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Innlent Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Innlent Vasaþjófnaður aukist að undanförnu Innlent Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ Innlent Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Innlent Ákærður fyrir að hafa stungið tvo gyðinga Erlent Fleiri fréttir Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Skipulagt niðurbrot á réttindum launafólks hafi náð til Íslands „Konur upplifa ekki öryggi í íslensku samfélagi“ Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Mátti ekki arfleiða sambýliskonuna að séreigninni Dómsmálaráðherra boðar herta löggjöf í vændismálum Vændiskaupendur verði nafngreindir og þeim stungið í steininn Svör Kristrúnar minni meira á Keir Starmer en Mette Fredriksen Flugvallarstæði Hvassahrauns á mesta áhættusvæði hraunflæðis Svæðisskrifstofur Guðmundar Inga líklega slegnar út af borðinu Helmingur gæti ekki mætt 100 þúsund króna útgjöldum Sjá meira