Magnús Geir næsti útvarpsstjóri samkvæmt Betsson Jakob Bjarnar skrifar 23. janúar 2014 10:44 Á þessa sex má veðja á veðmálasíðu Betsson.
Veðmálafyrirtækið Betsson setti í gær upp veðmál, hver verður næsti útvarpsstjóri, og stuðullinn á Magnús Geir Þórðarson hrynur niður. Vísir greindi frá því í gær að nú geta menn veðjað á það hver verður næsti útvarpsstjóri á veðmálasíðu Betsson. Sex eru nefndir til sögunnar og þótti Betsson-mönnum Magnús Geir Þórðarson líklegastur til að hreppa hnossið, en gengið verður frá ráðningu fyrir mánaðarlok, að sögn Ingva Hrafns Óskarssonar formanns stjórnar RÚV ohf. Magnús Geir var upphaflega með stuðulinn 2,23 sem þýðir einfaldlega það að leggi menn þúsund krónur á Magnús, hann verður fyrir valinu, þá fá menn greitt 2,230 krónur. Stuðullinn breytist eftir því hvernig menn staðsetja veðmál sín og nú kemur á daginn að þeir sem taka þátt í þessu veðmáli veðja upp til hópa á að Magnús Geir verði næsti útvarpsstjóri. Stuðullinn á hann er nú kominn niður í 1,23. Þetta þýðir með öðrum orðum að sá sem vill leggja þúsund krónur á hann, og vinnur veðmálið, fær til baka 1,230 krónur. Aðrir þykja ekki jafn líklegir. Bjarni Guðmundsson, sem nú er tímabundið útvarpsstjóri, er kominn í 3,70 úr 2,5, Salvör Nordal er komin í 4,60 úr 3,4 upphaflega, Guðjón Petersen er nú í 6 en var með stuðulinn 4, Stefán Jón Hafstein er kominn í 8,75 úr 6 og Ólína Þorvarðardóttir er komin í stuðulinn 10,50 úr 8. Þetta þýðir að þeir sem veðja á Betsson telja afar ólíklegt að hún verði fyrir valinu, sá sem leggur þúsund krónur undir á að hún verði næsti útvarpsstjóri, og ef svo fer að stjórn RÚV ohf ráði hana til starfans, fær sá hinn sami til baka 10,500 krónur.
Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Rubio: Ísland í miðjunni Innlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Innlent Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Innlent Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Innlent Fleiri fréttir Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Sjá meira