Innlent

Páfi segir internetið gjöf frá guði

Guðsteinn Bjarnason skrifar
Frans páfi á Péturstorginu í Róm.
Frans páfi á Péturstorginu í Róm. Vísir/AP
Frans páfi segir internetið vera gjöf frá guði. Það auðveldi fólki að eiga samskipti, en hann varar þó við því að liggi menn á netinu geti þeir einangrað sig frá fjölskyldu og vinum.

Hann tók sérstaklega fram að kaþólskir þurfi að gæta sín í samskiptum við annað fólk. Þeir megi ekki fyllast hroka og telja sig eina búa yfir sannleikanum.

„Að taka þátt í samræðum felur í sér að menn trúi því að mótaðilinn hafi eitthvað að segja, sem skiptir máli,” segir páfi í yfirlýsingu, sem hann sendi frá sér í gær. „Að taka þátt í samræðum þýðir ekki að við afneitum eigin hugmyndum og hefðum, heldur einungis þeirri þykjustu að þær einar séu fullgildar og algildar.” 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×