Lífið

Idris Elba þráir hlutverk í Girls

Idris Elba
Idris Elba AFP/NordicPhotos
Idris Elba hefur átt gríðarlegri velgengni að fagna undanfarið, til að mynda hlaut hann tilnefningu til Golden Globe verðlaunanna fyrir hlutverk sitt í Mandela og aðra tilnefningu fyrir hlutverk sitt í Luther, en það er eitt hlutverk sem hann hefur ekki fengið enn.

Ef mark má taka á Twitter-reikningi leikarans, þráir hann hlutverk í þætti Lenu Dunham, Girls. Gegn því lofar leikarinn að taka engar sjálfsmyndir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×