Innlent

Fékk heilahristing eftir bílslys

Sautján ára piltur fékk heilahristing og mar þegar bíll ók á hann í Reykjanesbæ í fyrradag.

Ökurmaður bílsins var að koma út úr hringtorgi þegar hann ók á piltinn. Pilturinn var fluttur með sjúkrabifreið á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Í ljós kom að hann hafði fengið heilahristing og mar. 

Bíllinn skemmdist og brotnaði meðal annars framrúða hans, að því er segir í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurnesjum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×