Tvær tillögur um Vogabyggð verðlaunaðar 24. janúar 2014 13:50 Tilllaga teiknistofunnar jvantspijker + FELIXX frá Hollandi.
Tvær tillögur unnu til verðlauna í hugmyndasamkeppni um skipulag Vogabyggðar í Reykjavík sem er landsvæðið í kringum Elliðavog. Úrslitin voru tilkynnt við hátíðlega athöfn í Þjónustuveri Reykjavíkurborgar í Borgartúni í dag. jvantspijker + FELIXX frá Hollandi og Teiknistofan Tröð áttu vinningstillögurnar og hlutu 500.000 krónur hvor í verðlaun. Hugmyndasamkeppnin gekk út á að útfæra hugmyndir og tillögur að skipulagi svæðisins í samræmi við markmið aðalskipulags Reykjavíkur 2010–2030 þar sem gert er ráð fyrir nýrri blandaðri og vistvænni byggð íbúða og atvinnuhúsnæðis á svæðinu. Alls voru fimm tillögur í úrslitum í keppninni sem Reykjavíkurborg hélt í samstarfi við Arkitektafélag Íslands og Hömlur ehf. Dómnefnd valdi tvær tillögur og segir í niðurstöðu dómnefndar að þær nálgist verkefnið á ólíkan hátt en vegi hvor aðra upp á spennandi hátt. Tillögu jvantspijker + FELIXX (nr. 3) telur dómnefndin að sé áræðin og frumleg, að því er segir í tilkynningu frá borginni. „Samgöngukerfi hverfishlutans er vel leyst og tenging Súðarvogs við Dugguvog er sannfærandi. Sameinaðar eru þær megin akstursleiðir gegnum hverfið. Nýtt miðlægt torg sem býður upp á sterka hverfismiðju er annarsvegar skemmtilega tengt göngu- og hjólabrú yfir Sæbraut og hinsvegar göngubrú yfir Naustavog leiðin tengist þannig aðalleið að skóla. Feiknarlega vel unnin tillaga og skemmtileg.“ Tillögu Teiknistofunnar Traðar (nr. 5) telur dómnefndin að sé jarðbundin og raunsæ, að því er segir í tilkynningu. „Tillagan byggir á skýrri landnotkun með atvinnuhúsnæði við Sæbraut, því næst blandaðri byggð sem nær yfir Súðavog og austast íbúðabyggð að Naustavogi. Byggðin er 3-5 hæða. Núverandi gatnakerfi er lagt til grundvallar og Súðavogur er megin ásinn í norður-suður. Dugguvogur og Súðavogur halda sér að mestu og þvergötur frá Súðavogi liggja niður að strandgönguleið. Tillagan er vel unnin og skýr, bæði í framsetningu og hugsun.“ Dómnefndin telur að saman gefi tillögurnar svo áhugaverða framtíðarsýn á svæðið að ákveðið var að velja þær báðar sem verðlaunatillögur.Tillaga teiknistofarinnar Traðar..
Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Rubio: Ísland í miðjunni Innlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Innlent Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Innlent Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Innlent Fleiri fréttir Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Sjá meira