Innlent

Tólf háhyrningar og tíu höfrungar í Kolgrafafirði

Háhyrningur í Kolgrafafirði.
Háhyrningur í Kolgrafafirði.
Dýralíf er í miklum blóma í Kolgrafafirði á Snæfellsnesi í kjölfar síldarinnar sem hefur sest þar að.

Útlendingar sem áttu leið um Kolgrafafjörð þann 19. janúar síðastliðinn náðu ótrúlegu myndbandi af háhyrningum sem nutu sína í síldarveislu í firðinum. Myndbandið, sem má sjá hér að neðan, var sett inn á Facebook-síðu Birding Iceland

Í myndbandinu má sjá tólf háhyrninga synda um fjörðinn auk tíu höfrunga. Þá var fuglalíf í miklum blóma þegar útlendingarnir fóru þar um en um 10 ernir flugu yfir firðinum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×