Yngsti bæjarlistamaður Seltjarnarness frá upphafi Jón Júlíus Karlsson skrifar 25. janúar 2014 19:24
Ari Bragi Kárason, trompetleikari, var í dag útnefndur bæjarlistamaður Seltjarnarness 2014 og er hann langyngsti Seltirningurinn til að hljóta þessa nafnbót. Ari er aðeins 24 ára gamall og var snemma áberandi í íslensku tónlistarlífi. Níu ára gamall hlaut hann hvatningarverðlaun ungra og efnilegra Íslendinga frá forseta Íslands og var Ari valinn bjartasta vonin á Íslensku tónlistarverðlaununum árið 2011. „Ég hef alltaf verið eldri sál og umgengist eldra fólk frá því að ég man eftir mér,“ segir Ari sem er stoltur af því að hljóta þessa nafnbót. „Ég lít á þetta sem heiður og tækifæri. Ég kippi mér ekki upp við það hvað aðrir bæjarlistamenn hafi verið eldri en ég eða ég yngri.“Ari Bragi Kárason ásamt fjölskyldu.Mynd/SeltjarnarnesbærUnnið með Noruh Jones Ari hefur unnið til fjölda verðlauna og starfað með þekktum erlendum tónlistarmönnum. Ari hefur meðal annars leikið inn á hljómplötu hjá Noruh Jones auk þess að vera afkastamikill hér heima á Íslandi. Hann stefnir á útgáfu hljómplötu í sumar í samstarfi við Eyþór Gunnarsson píanóleikara. Hann hrósar öflugu tónlistarlífi á Seltjarnarnesi „Tónlistarskólinn er algjör drifkraftur í samfélaginu og það er mjög öflugt starf sem fer fram á Seltjarnarnesi. Ég er algjörlega afurð þess,“ segir Ari Bragi.Framúrskarandi tónlistar- og íþróttamaður Ara er margt til lista lagt. Hann er með hæfileikaríkustu tónlistarmönnum landsins en er að auki framúrskarandi íþróttamaður. Hann hleypur 100 metra spretthlaup á rétt rúmum 11 sekúndum auk þess að hafa orðið Íslandsmeistari í ólympískum lyftingum og róðri. „Það er gott að hafa eitthvað á móti og gaman að spreyta sig á öðrum sviðum.“
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Erlent Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Erlent Eitraður reykjarmökkur veldur vandræðum í Suðaustur-Asíu Erlent Fleiri fréttir „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Sjá meira