Var ekki tryggð staðan fyrirfram Heimir Már Pétursson skrifar 27. janúar 2014 12:42 Magnús Geir Þórðarson nýr útvarpsstjóri segir umrót síðustu missera hafa sett RÚV í erfiða stöðu. Hann neitar því að honum hafi verið lofuð staðan fyrirfram. vísir/gva
Magnús Geir Þórðarson nýr útvarpsstjóri segir umrótið innan Ríkisútvarpsins undanfarna mánuði hafa skapað erfiða stöðu en hann sé sannfærður um að Ríkisútvarpið eigi bjarta framtíð. Ekki hafi verið búið að tryggja honum stöðuna áður en hann sótti um hana. Ráðning nýs útvarpsstjóra er síðasta verk fráfarandi stjórnar Ríkisútvarpsins. Kjósa átti nýja stjórn á Alþingi á fimmtudag en því var frestað og verður ný stjórn væntanlega kosin á þinginu í dag. Þrjátíu og níu manns sóttu um stöðu útvarpsstjóra og eftir yfirferð og viðtöl var þeim að lokum fækkað í fjóra sem stjórn ríkisútvarpsins ræddi við, þeirra á meðal Magnús Geir Þórðarson leikhússtjóra í Borgarleikhúsinu í gærkvöldi. Skömmu eftir það viðtal var tilkynnt að honum hefði verið boðin staðan. Magnús Geir segir að hans fyrsta verk verði að hlusta á starfsmenn en hann sé sannfærður um að stofnunin eigi sér bjarta framtíð. Margir töldu Rás 1 hafa farið illa út úr nýlegum niðurskuðri. „Ég held að Rás 1 sé ein af stoðum Ríkisútvarpsins og afskaplega mikilvægt að hlúa að henni og byggja upp til framtíðar. Þannig að klárlega er Rás 1 eitt af fjölmörgum spennandi verkefnum sem bíða,“ segir Magnús Geir. Hann segir ljóst eftir atburðir undanfarinna mánuða að Ríkisútvarpið skipti fólkið í landinu miklu máli. Innan Ríkisútvarpsins sé frábært starfsfólk. „En því er ekki að leyna að umrótið og niðurskurður síðustu mánuði hefur orsakað að það er að mörgu leyti erfið staða. En ég er sannfærður um að það ætti að vera hægt að vinna úr því og byggja upp RÚV sem siglir inn í bjarta og góða tíma,“ segir nýr útvarpsstjóri. Margir höfðu spáð því að Magnús Geir fengi stöðuna og sumir fullyrtu jafnvel að hann væri sá umsækjandi sem Illugi Gunnarsson menntamálaráðherra vildi fá í starfið.Var búiðaðhvíslaþvíaðþér aðþúværir nokkuðöruggur um aðfáþetta starf? „Það var ekki búið að hvísla því að mér, nei. En hins vegar hugsaði ég málið afar vel áður en ég sótti um. Ástæðan fyrir því að þetta var erfið ákvörðun var einfaldlega að ég er í frábæru og skemmtilegu starfi í dag sem leikhússtjóri Borgarleikhússins,“ segir Magnús Geir. Þess vegna hafi ekki verið sjálfgefið að freista þess að fara á annan vettvang en hann hafi metið það svo að reynsla hans gæti nýst í þessu spennandi viðfangsefni.Þannig að hvorki stjórnarmenn né menntamálaráðherra höfðu ýjað að því að þú værir nokkuð öruggur með þetta?„Nei, það var ekki þannig. Ég fékk hins vegar hvatningu úr ýmsum áttum, ekki síst frá fjölda starfsmanna Ríkisútvarpsins,“ sagði Magnús Geir Þórðarson nýr útvarpsstjóri.
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Erlent Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Erlent Eitraður reykjarmökkur veldur vandræðum í Suðaustur-Asíu Erlent Fleiri fréttir „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Sjá meira