Vill leiða Ríkisútvarpið inn í nýja tíma Birta Björnsdóttir skrifar 27. janúar 2014 20:00
Magnús Geir Þórðarson, fráfarandi Borgarleikhússtjóri var í gær ráðinn Útvarpsstjóri R'ikisútvarpsins. 39 einstaklingar sóttu um stöðuna, og segir Ingvi Hrafn Óskarsson, stjórnarformaður Ríkisútvarpsins ohf, Capacent hafa séð um ráðningarferlið fyrir stjórnina. Upphaflega hafi Capacent valið 11 umsækjendur til viðtals, framhaldsviðtöl voru svo tekin við 6 einstaklinga og svo kynntu fjórir umsækjendur framtíðarsýn sína á Ríkisútvarpið. Í kjölfarið var ákveðið að bjóða Magnúsi Geir stöðuna. Ingvi Hrafn vill ekki staðfesta hvaða aðrir umsækjendur komu til álita á lokasprettinum. Ingi Hrafn segir stjórnina vissulega hafa litið til þess að Magnús Geir hefur ekki reynslu af störfum í fjölmiðlum. Þar hafi þó vegið þyngra að hann sé gott leiðtogaefni og hafi skapað sér gott orð eftir gott gengi í leikhúsheiminum, bæði hjá Leikfélagi Akureyrar og nú síðast Leikfélagi Reykjavíkur. Ingvi Hrafn vill lítið gefa upp um framtíðarsýn hins nýja Útvarpsstjóra og stjórnar RÚV og segir tímann leiða það í ljós hvort um sé að ræða mikla stefnubreytingu á rekstrinum. Magnús Geir verður nú níundi maðurinn til að sinna starfi útvarpsstjóra. Hann segir að ákvörðunin um að sækja um starfið hafi alfarið verið hans, þó svo að hann hafi fengið hvatningu víðar. "Ég er fullut tilhlökkunnar. Ríkisútvarpið er mikilvæg stofnun. Innviðirnir eru að mörgu leyti góðir þar þó auðvitað sé alltaf eitthvað sem megi breyta og bæta," segir Magnús Geir, og bætir við að hann hlakki til að leiða RÚV inn í nýja tíma. Hvað varðar nánari útfærslur á komandi breytingum segist Magnús vilja láta verkin tala. Viðtalið við Magnús Geir má sjá í heild sinni á meðfylgjandi myndskeiði.
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Erlent Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Erlent Eitraður reykjarmökkur veldur vandræðum í Suðaustur-Asíu Erlent Fleiri fréttir „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Sjá meira