Björgólfur góðgerðaröðlingur landsins Jakob Bjarnar skrifar 28. janúar 2014 10:27 Eiríkur Bergmann: Endurkoma aldarinnar í íslenskt viðskiptalíf varð þegar Björgólfur Guðmundsson snéri aftur eftir árabil í útlegð.
Bók dr. Eiríks Bergmann, Iceland and the international financial crisis: Boom, Bust and Recovery, kemur formlega út í dag. Á íslensku útleggst titillinn: Ísland og alþjóðlega fjármálakrísan: Ris, Fall og Endurreisn. „Hún kemur út hjá alþjóðlega útgáfufélaginu Palgrave Macmillan, samtímis í Evrópu og í Bandaríkjunum og er dreift þaðan á heimsvísu. Fjöldi eintaka hafa þegar verið seld í forsölu og í áskrift en bókin er í ritröðinni International Political Economy, sem fagnaði þrjátíu ára afmæli á liðnu ári og þykir eins sú áhrifamesta á þessu sviði,“ segir Eiríkur ánægður með daginn. Meðgangan hefur verið löng eða fimm ár. Eiríkur setur fram nýja kenningu um íslensk stjórnmál: að þau grundvallist enn á pólitískri sjálfsmynd þjóðarinnar sem mótaðist í sjálfstæðisbaráttunni og feli í sér tvíþætta áherslu; annars vegar á formlegt fullveldi landsins en einnig þá ósk að Ísland verði nútímavætt ríki á pari við önnur vestræn velmegunarríki. Þessi pólitíska sjálfsmynd þjóðarinnar hefur verið ráðandi í bæði utanríkis- og efnahagsstefnu landsins og skipt sköpum fyrir efnahagslega þróun í landinu.Björgólfur var elskaður af þjóðinni Hér er brot úr bókinni sem Eiríkur var svo vinsamlegur að snara sérstaklega fyrir Vísi. Af því má ráða að um hressilega lesningu sé að ræða en þarna er fjallað um Björgólf Guðmundsson. Endurkoma aldarinnar í íslenskt viðskiptalíf varð þegar Björgólfur Guðmundsson snéri aftur eftir árabil í útlegð. Ekki aðeins tók hann yfir Landsbankann, sem hann taldi hafa komið skipafélagi sínu, Hafskip, fyrir kattarnef heldur keypti hann einnig helsta fyrrum keppinaut sinn, Eimskip, sem árið 1914 hafði að hluta til verið fjármagnað af brottfluttum Íslendingum í Ameríku í viðleitni til að tengja gamla landið við umheiminn. Eimskip varð svo gott sem heilagt í huga íslendinga og þótti skipta sköpum í að varðveita sjálfstæði landsins. Guðmundsson lét ekki staðar numið heldur keypti sig inn í mörg mikilvægustu fyrirtæki landsins, meðal annars helstu bókaútgáfuna, sem einnig var valdahús íslenskrar menningarinnar því hún varðveitti margt það verðmætasta í bókmenntaarfi landsins. Klæddur í teinótt einkennisföt sín varð hann álitinn helsti góðgerðaröðlingur landsins, elskaður af þjóðinni, og var um skeið líklega áhrifameiri í menningarlífi eyjunnar en sjálfur menntamálaráðherrann, sem í mögum opnunarathöfnum varð að láta sér lynda að hita upp fyrir kaupahéðininn.
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Erlent Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Erlent Eitraður reykjarmökkur veldur vandræðum í Suðaustur-Asíu Erlent Fleiri fréttir Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Sjá meira