Átök á þingi um stjórn RUV ohf Jakob Bjarnar skrifar 28. janúar 2014 16:06 Svo virðist sem meirihlutinn sé ekki búinn að gefa uppá bátinn fyrirætlanir um að 6 af 9 í stjórn RUV ohf séu á vegum stjórnarflokkanna. Pétur Gunnarsson og Lára Hanna Einarsdóttir eru fulltrúar Pírata í stjórn og virðast nú á útleið.
Helgi Hjörvar, þingmaður Samfylkingarinnar, steig í pontu Alþingis nú fyrir skömmu, í umræðum um störf þingsins, og sagðist í hópi þeirra sem vonast til að ófriðurinn um Ríkisútvarpið væri í rénun. „En þá stígur hæstv. forsætisráðherra fram og ætlar aftur að efna til átaka um stjórn Ríkisútvarpsins. Hann ætlar aftur að reyna að svíkja samkomulagið sem gert var um skipan stjórnarinnar hér síðasta sumar. Ég harma að stjórnarflokkarnir hafi ekki sjálfsvirðingu til að reyna að standa við gerða samninga og við þær yfirlýsingar sem gefnar hafa verið í ræðustól Alþingis af þeirra hálfu. Það getur ekki verið forgangsverkefni í stjórnmálum að hrekja fulltrúa Pírata út úr stjórn Ríkisútvarpsins til að rýma fyrir enn einum framsóknarmanninum,“ segir Helgi Hjörvar meðal annars. Til stendur að kjósa um stjórnina á morgun.Vilja fulltrúa Pírata út Helgi rakti þá róstur sem urðu þegar skipað var í stjórn RÚV síðast en minnihlutinn gekk út frá því að fyrir lægi samkomulag um þá skipan en meirihlutinn vildi falla frá því og töldu menn að það væri meðal annars vegna þess að óánægja var með fulltrúa Pírata, að það væri Lára Hanna Einarsdóttir þýðandi. Stjórnarmeirihlutinn vildi gera þær breytingar að hann fengi 6 en minnihlutinn 3 en í atkvæðagreiðslu greiddi einn þingmaður atkvæði með stjórnarandstöðu og svo fór að hlutföllin eru nú 5/4. Píratar breyttu í kjölfar þess fulltrúaskipan sinni og gerðu Pétur Gunnarsson rithöfund að sínum aðalmanni og Lára Hanna var gerð að varamanni í stjórn. Nú liggja fyrir hugmyndir þess efnis að fjölgað verði fulltrúum Framsóknarflokksins í stjórn á kostnað Pírata, ef marka má orð Helga. Fyrir liggur að skipa verður nýjan mann í stað Magnúsar Geirs Þórðarsonar sem nú er orðinn útvarpsstjóri.Að gera Unni Brá að ómerkingi „Það var samkomulag sem við þingflokksformenn töldum okkur hafa gert við þingflokksformenn Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks. Það var ömurlegt að fylgjast með hæstvirtum forsætisráðherra þegar hann sendi hæstvirtum þingmanni Sigrúnu Magnúsdóttur hér upp til að biðjast afsökunar á því að slíkt samkomulag héldi ekki enda stóðu stjórnarliðar ekki á bak við þau svik heldur gekk einn þeirra í lið með stjórnarandstöðunni og tryggði það að samkomulagið hélt, að yfirlýsing formanns allsherjar- og menntamálanefndar í ræðustól Alþingis hélt og stjórnarandstaðan fékk annan fulltrúann og Píratar eru í stjórn Ríkisútvarpsins,“ sagði Helgi Hjörvar og hélt áfram enn hvassyrtari: „Ég hélt að þessi sneypuför hefði verið svo ömurleg fyrir okkur öll að menn mundu síðan láta kyrrt liggja. En nú á aftur (Forseti hringir.) að taka þetta upp, aftur að gera hæstvirtum þingmanni Unni Brá Konráðsdóttur að ómerkingi, (Forseti hringir.) aftur að svíkja samninginn sem gerður var. Hvað (Forseti hringir.) … ráðherra?“
Mest lesið Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent „Það er bara mjög sorglegt“ Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Operation Matrix: Fjölmörg burðardýr fluttu inn minnst 100 kíló af kókaíni Fréttir Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Erlent Umferðarslys í Bolungarvík Innlent Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara Innlent Fleiri fréttir Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Sjá meira