Samspil ljóss og myrkurs verður þemað á Vetrarhátíðinni Stefán Árni Pálsson skrifar 28. janúar 2014 17:39 Vetrarhátíðin verður haldin í Reykjavík 6.-15. febrúar. mynd/aðsend
Samspil ljóss og myrkurs verður fyrirferðamikið á Vetrarhátíð sem haldin verður í Reykjavík 6.-15. febrúar. Markmið hátíðarinnar er að lýsa upp mesta skammdegið í febrúar með viðburðum og uppákomum af ýmsu tagi, stórum sem smáum en yfirskrift hátíðarinnar er Magnað myrkur. Dagskráin verður að þessu sinni einkar glæsileg en fjöldi listamanna mun taka þátt í að skapa einstaka stemningu í borginni. Ljósalistaverk eftir innlenda og erlenda listamenn verða tendruð og ljósaviðburðir munu eiga sér stað um alla borg og verða byggingar og almenningsrými lýst upp með fjölbreyttum hætti. Meginstoðir Vetrarhátíðar 2014 verða Safnanótt, Sundlauganótt og ljósalistaverk með skýrri tengingu við ljós og myrkur. Aðrir skemmtilegir viðburðir hátíðarinnar eru tónleikarnir Denver Calling Reykjavík, snjóskurður, heimsdagur barna og ráðstefna. Hátíðin verður sett í Hljómskálagarðinum fimmtudaginn 6. febrúar kl. 19.30. Opnunaratriðið verður verk eftir Circle 6 sem býður áhorfanda að rannsaka samband ljóss og hreyfingar. Áhorfendur verða virkir þátttakendur í sjónarspili verksins sem er óskilgreint, opið og teygjanleg víxlverkun rýmis og skúlptúrs. Circle 6 eru listamennirnir Inuk Silis Høegh (Grænlandi/Danmörku), Arild M. Kalseth (Noregi), and Amelie Deschamps (Frakklandi/Kanada). Af nógu verður að taka á þessum dimmu vetrardögum þar sem magnað myrkur fær að njóta sín í Reykjavík og munum við leika okkur að andstæðum ljóss og myrkurs á Vetrarhátíð.
Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Rubio: Ísland í miðjunni Innlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Innlent Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Innlent Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Bíði og bíði eftir Bjarna Innlent Fleiri fréttir Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Sjá meira