Óheimilt að krefja fólk um þvagsýni þegar sótt er um fjárhagsaðstoð Stefán Árni Pálsson skrifar 28. janúar 2014 19:22 Það samræmist ekki lögum að krefja ákveðin umsækjanda um fjárhagsaðstoð um þvagsýni. mynd/samsett
Í úrskurður Persónuverndar segir að það samræmist ekki lögum að krefja ákveðin umsækjanda um fjárhagsaðstoð um þvagsýni. Þann 7. september 2013 barst Persónuvernd kvörtun frá aðila, vegna kröfu félagsþjónustu Fljótsdalshéraðs um þvagsýni frá aðilanum í tengslum við umsókn hans um fjárhagsaðstoð. Þar kemur m.a. fram að kvartað sé yfir kröfu félagsþjónustunnar um þvagsýni frá umsækjandanum í hvert skipti sem hann sækti um fjárhagsaðstoð. Persónuvernd óskaði eftir nánari skýringum frá aðilanum um erindi hans. Hann kom frekari skýringum á framfæri munnlega með símtali við starfsmann Persónuverndar þann 30. september sl. Í símtalinu kom fram að hann teldi að vinnsla persónuupplýsinga um hann hefði átt sér stað þegar hann var beðinn um þvagsýni í tengslum við umsókn hans um fjárhagsaðstoð. Þann 21. nóvember kom aðilinn á framfæri frekari skýringum á málinu nánar tiltekið að hann hefði verið beðinn um að skila þvagsýni til félagsþjónustu Fljótsdalshéraðs er hann sótti um fjárhagsaðstoð árið 2013. Hefði hann orðið við því í fyrsta skiptið en síðan þá hefði hann neitað að gefa þvagsýni og hefði af þeim sökum verið synjað um fjárhagsaðstoð frá þeim tíma. Í úrskurðinum segir:Krafa félagsmálanefndar Fljótsdalshéraðs um afhendingu þvagsýnis frá kvartanda í tengslum við umsókn hans um fjárhagsaðstoð, var ekki í samræmi við lög nr. 77/2000, um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga. Félagsmálastofnun Fljótsdalshéraðs hefur vísað til 8. gr. reglna um fjárhagsaðstoð hjá félagsþjónustu Fljótsdalshéraðs en þar segir: „Heimilt er að synja umsækjendum um fjárhagsaðstoð séu þeir í neyslu áfengis- eða annarra vímuefna, en bjóða aðstoð til að fara í áfengis/vímuefnameðferð s.s. með greiðslu ferðakostnaðar og vasapeninga til einstaklinga sem eru að fara í áfengismeðferð og/eða aðra vímuefnameðferð og aðstoð vegna dvalargjalds á áfangaheimili.“
Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Rubio: Ísland í miðjunni Innlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Innlent Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Innlent Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Innlent Fleiri fréttir Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Sjá meira