„Ég ætla að labba aftur, það er alveg á hreinu“ Kjartan Hreinn Njálsson. skrifar 28. janúar 2014 19:35 „
Ég ætla að labba aftur, það er alveg á hreinu.“ Þetta segir Aðalbjörg Guðgeirsdóttir sem lamaðist fyrir tæpum þremur áratugum. Einu sinni í viku segir hún engu að síður skilið við hjólastólinn og fer í stuttan göngutúr. Hún er sannfærð um að fá göngugetuna aftur og bíður þess að vísindamenn hysji upp um sig buxurnar. Aðalbjörg hefur verið bundin við hjólastól í tuttugu og sjö ár eða allt frá því að hún slasaðist í hörmulegu bílslysi við Kúagerði í desember árið nítján hundruð áttatíu og sex. Hún var þá rétt rúmlega tvítug. Meiðsl hennar voru mikil og um leið varð ljóst að Aðalbjörg myndi ekki stíga í fæturna aftur. Ýmislegt hefur þó breyst á tæpum þremur áratugum. Meðferð á Grensás stendur enn yfir og Aðalbjörg hefur verið unnið að því að setja saman gagnagrunn um aðgengi fatlaðra á helstu ferðmannastöðum landsins. En þar með er ekki öll sagan sögð. Einu sinni í viku segir Aðalbjörg skilið við hjólastólinn í þrjátíu mínútur og fær að nota rafræna stoðgrind á Grensásdeild. „Maður verður að halda í vonina, það er það eina sem skiptir máli núna,“ segir Aðalbjörg. „Ég ætla að labba aftur, það er alveg á hreinu. Ég er bara að bíða eftir tækninni. Þess vegna er í þessari græju, þess vegna held ég mér í formi. Ég ætla að vera reiðubúin þegar tæknin loks kemur.“ Stoðgrindin nýtist Aðalbjörgu vegna þess að hún er ekki með fullan mænuskaða. Þessi tækni hentar því ekki öllum enda eru rannsóknir af skornum skammti, auk þess verður að vera raunverulegur möguleiki á aukinni göngugetu. „Það er alltaf gaman að koma hingað á Grensás. Fæ hér að standa og labba, sem er auðvitað mikill plús.“ „Maður verður alltaf að reyna. Ekki segja að maður geti ekki eitthvað. Maður verður að reyna og komast að því hvað maður getur í raun gert. Maður getur nefnilega gert flest, nema auðvitað gengið í mínu tilfelli.
Mest lesið Vaktin: Bandaríkin gera árásir á Íran Erlent Árás Bandaríkjanna á Íran: „Íran, yfirgangsseggur Miðausturlandanna, verður að boða til friðar“ Erlent Vara við því að ölvuðu fólki sé boðið að sitja að sumbli í Lystigarðinum Innlent Bandaríkjamenn gera loftárásir á Íran Erlent Átta látnir hið minnsta eftir að kviknaði í loftbelg Erlent Maðurinn er fundinn Innlent Ísraelar bíði ekki eftir grænu ljósi Trump Erlent Sigríður fannst heil á húfi Innlent Sögulega lítið fylgi Framsóknar, veiðigjöld og Íran Innlent Tókst að leysa alla hvalina úr fjörunni Innlent Fleiri fréttir Krísa í Kattholti: Fólk losar sig við ketti á sumrin Íranir án bandamanna, svimandi hátt verðlag og krísa í Kattholti Sögulega lítið fylgi Framsóknar, veiðigjöld og Íran Vara við því að ölvuðu fólki sé boðið að sitja að sumbli í Lystigarðinum Tveir handteknir grunaðir um eignaspjöll Tókst að leysa alla hvalina úr fjörunni Mikilvægt að fólk þurfi ekki að flýja húsnæði vegna ofnæmis Þriðjungur þjóðarinnar á Chess.com „Glæpsamlegar árásir,“ gæludýr í fjölbýli og gleði með Messi Fjörutíu grindhvalir fastir í Ólafsfirði Braust inn í íbúð í Laugardalnum og allir voru heima Lakasta þátttakan meðal kynsegin fólks Stunda njósnir og hafa athafnað sig á Íslandi Sigríður fannst heil á húfi Úrskurðaður í gæsluvarðhald vegna alvarlegrar stunguárásar Þyrlan send út vegna göngumanns í sjálfheldu Samningur í höfn: „Búið að skemma ansi mikið fyrir okkur“ Ógnarhópar með tengsl við Kína, Aþena og hinseginhátíð í Hrísey Sæki um íslenska vegabréfsáritun til að ferðast annað „Myndi ekki mæla með þessu við nokkurn mann“ Kattholt yfirfullt Steypumót féll á starfsmann byggingarfyrirtækis Bæta ekki fallvarnir við veginn: „Þetta er eilífur slagur“ Tékkneski og bandaríski herinn ásamt flugsystrum á Akureyri Þinglok hvergi í augsýn: „Málþóf! Málþóf!“ Segir komu írsku lögreglunnar marka tímamót í leitinni að Jóni Þresti Vinnuslys í Laugardal þar sem maður fékk járnstöng í andlitið Ísland tekur þátt í aðgerðum gegn skuggaflota Rússlands Óttast að boð og bönn ráðherra muni setja verslanir í þrot Leit að Sigríði heldur áfram um helgina Sjá meira
Árás Bandaríkjanna á Íran: „Íran, yfirgangsseggur Miðausturlandanna, verður að boða til friðar“ Erlent
Árás Bandaríkjanna á Íran: „Íran, yfirgangsseggur Miðausturlandanna, verður að boða til friðar“ Erlent