Graðasti hundur í heimi Jakob Bjarnar skrifar 29. janúar 2014 09:07 Hemmi er franskur bolabítur og á til að koma eigandanum, Andra Frey Viðarssyni útvarpsmanni, í bobba vegna ákefðar sinnar. Mynd/Facebook
Andri Freyr Viðarsson útvarpsmaður á 9 mánaða franskan bolabít sem heitir Hemmi. Eins og flestir hundaeigendur elskar Andri Freyr sinn hund og var tregur mjög í taumi þegar Vísir falaðist eftir því að hann segði aðeins af þessum sérstaka hundi sínum, sagði að það væri nánast eins og flagga börnum sínum í blöðunum. En hann lét til leiðast þegar blaðamaður Vísis setti þumalskrúfurnar á hann.Heitir í höfuð tveggja Hemma Hemmi er ekki hefðbundið hundanafn; ekki eins og Snati, Vaskur eða Kátur en spurður segir Andri Freyr svo frá að ekki fyrir svo löngu missti þjóðin tvo frábæra Hemma sem voru báðir miklir gleðigjafar. „Hemma Feita, sem svo var kallaður, og Hemma Gunn. Ég þekkti þá báða þessa toppmenn og þar sem Hemmi minn er sjálfur mikill gleðigjafi þá kom ekkert annað til greina en að skýra hann í höfuðið á þessum perlum.“ Hemmi er í raun skáfrændi Tómasar, bolabítsins sem var ferðafélagi Andra í fyrstu Andri á Flandri-þáttaröðinni. „Tómas og foreldrar Hemma, þau Fríða og Felix, búa á sama heimili í Keflavík, eftir að ég sá Hemma, sem þá var nokkrra vikna hvolpur, gat ég ekki hugsað mér að taka hann ekki með mér heim. Þetta var ást við fyrstu sýn.“Hjólar í allt sem hreyfist Andri Freyr hefur sagt um Hemma sinn að þetta sé graðasti hundur í heimi. „Ég hef reyndar ekki fengið það staðfest en ég held að það hljóti að vera. Hemmi er alltaf með hann lafandi úti og skammast sín ekkert fyrir það. Svo slefar hann aldrei nema þegar hann er í kringum tíkur en þá slefar hann líka alveg svakalega. Ég vona að þetta eldist af honum annars þarf ég að grípa til aðgerða." Hemmi á það til hlaupa á fætur vina Andra og riðlast þar á. „Ekki bara það, hann hjólar í allt sem hreyfist og virðist aldurinn engu skipta. Þetta er einlægt dýr sem hlustar á sínar þarfir og stundum á ekkert annað. Maður þarf stöðugt að fylgjast með honum en hann gefur svo mikið til baka að maður lætur sig hafa það.“Migið á andlit Hemma Andri Freyr, sem lætur sér fátt fyrir brjósti brenna og eer sjálfur eðlilegur náungi eins og Hemmi, segist ekki hafa lent í vandræðalegum uppákomum vegna þessarar yfirgengilegu ákefðar hundsins. „Ekki ég beint en Hemmi hefur svo sannarlega gert það en oftar en einu sinni hafa stærri hundar mígið á andlit hans án þess að taka eftir því. Þetta gerist þegar Hemmi er að nusa af kynfærum þeirra. Það má með sanni segja að það sé forleikur sem fer úrskeiðis. Flestum hundum öðrum veitist ekki erfitt að hlaupa hann af sér og það getur orðið ansi vandræðalegt þegar hann reynir að hlaupa á eftir þeim með hann beinstífann!“ Svo virðist sem franski bolabíturinn sé tískuhundur hinna frægu á Íslandi nú um þessar mundir því auk Andra Freys á Steindi Jr. einn slíkan, sem er tík, fjórum mánuðum yngri en Hemmi og samfeðra.
Mest lesið Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Erlent NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Erlent Eitraður reykjarmökkur veldur vandræðum í Suðaustur-Asíu Erlent Fleiri fréttir Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Sjá meira