Góð loðnuvertíð verður sífellt ólíklegri Svavar Hávarðsson skrifar 29. janúar 2014 11:22 Birtingur í heimahöfn í Neskaupstað á síðustu vertíð. Mikil uppgrip tapast hjá fiskvinnslufólki ef fram heldur sem horfir. Mynd/Kristín Svanhvít Hávarðsdóttir
Með hverjum deginum sem líður dregur úr líkum á að takist að mæla loðnustofninn og þar af leiðandi yrði nákvæm ráðgjöf til veiða í uppnámi. Ekki er loku fyrir það skotið að göngumynstur loðnunnar verði óhefðbundið; loðnan gangi ekki norður og austur fyrir land þar sem veiðarnar hafa verið mestar undanfarin ár heldur verði um vesturgöngu að ræða. Það skapar sömu vandræði því þá gefst of stuttur tími til mælinga og veiða áður en loðnan hrygnir og drepst. Þorsteinn Sigurðsson, sviðsstjóri nytjastofnasviðs Hafrannsóknastofnunar, útskýrði þessa stöðu fyrir atvinnuveganefnd Alþingis á fundi nefndarinnar í gær, þar sem staða sjávarútvegsins var til umfjöllunar. Eins kom fram í máli Þorsteins að Hafrannsóknastofnun bíður átekta eftir fréttum frá loðnuveiðiflotanum norður af landinu, en ekkert hefur fundist dögum saman. Rannsóknaskipin hafa ekki sinnt leit nema í sex daga, en fjárheimildir leyfa ekki leit þegar lítið sem ekkert er að frétta. Í þeirri leit fannst aldrei magn af loðnu sem réttlætti mælingu. Aðeins hafa verið gefnar út heimildir til veiða á 160 þúsund tonnum, og í hlut íslenskra skipa komu um 85 þúsund tonn – en heildarafli á vertíðinni í fyrra var um 400 þúsund tonn. Það er til marks um hversu staðan er óvenjuleg að loðnan er oft gengin upp í fjöru við Suðausturland á tímabilinu frá mánaðamótum janúar/febrúar og fram í miðjan febrúarmánuð. Eftir það gengur hún hratt með strandsjónum til að hrygna á stóru svæði við Suður- og Vesturland. „En ef loðnan fer ekki að birtast fyrir norðan og austan þá bendir margt til að hún gæti komið vestan að, en það gerðist síðast 2001,“ sagði Þorsteinn og útskýrði að þá kemur loðnan beint undan ísnum við Grænland mjög seint og fer beint í hrygningu, aðallega fyrir vestan land. Á fundinum bættust við upplýsingar um að markaðsmál loðnu eru miklum vafa undirorpin, ef hún þá veiðist á annað borð í einhverju verulegu magni – bæði til mjöl- og lýsisframleiðslu auk frystingar loðnu og hrogna.Fjárframlög binda hendur HafrannsóknastofnunarPáll Jóhann Pálsson, þingmaður Framsóknarflokksins, spurði Þorstein af hverju rannsóknaskipunum væri ekki beitt til leitar á loðnu fyrir norðan land, og hvort stofnunin „tímdi ekki“ að hjálpa til við loðnuleitina. Ástæðu þessa útskýrði Þorsteinn með þeirri einföldu staðreynd að í ljósi framlaga til stofnunarinnar væru úthaldsdagar rannsóknaskipanna á starfsáætlun tæplega 200. Á sama tíma eru óskir um notkun á skipunum upp á 400 daga samtals. „Því er ljóst að það verður að forgangsraða hjá stofnuninni miðað við fjárheimildir,“ sagði Þorsteinn. „Þetta er gagnrýnivert, ég tek undir það, og ekki sú staða sem við vildum vera í einfaldlega vegna þess að loðnan er bæði mikilvægur veiðistofn en ekki síður sem ein aðalfæða annarra nytjastofna við Ísland,“ bætti hann við og að á meðan ekki væri hægt að beita skipi til rannsókna væri lítið hægt að læra um það sem er að gerast í stofninum og í hafinu.
Mest lesið Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Leggjast gegn því að útivistartími tíu til tólf ára verði lengdur að vetri Innlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Erlent NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Erlent Eitraður reykjarmökkur veldur vandræðum í Suðaustur-Asíu Erlent Fleiri fréttir Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Sjá meira