Innlent

Pírötum skákað út úr stjórn Ríkisútvarpsins

Heimir Már Pétursson skrifar
Stjórnarflokkarnir fengu sínu framgengt við kosningu í stjórn Ríkisútvarpsins á Alþingi í dag sem þýðir að Píratar, einn þingflokka, hefur ekki fulltrúa í stjórn fyrirtækisins.

Síðast þegar kosið var í stjórn ríkisfjölmiðilsins á Alþingi á sumarþinginu lögðu stjórnarflokkarnir fram lista með sex fulltrúum af níu, sem hefði þýtt að Píratar einn stjórnarandstöðuflokka hefðu ekki fengið fulltrúa í stjórnina. En þá brá svo við að einn stjórnarþingmaður greiddi atkvæði með stjórnarandstöðunni þannig að stjórnarflokkunum varð ekki að ósk sinni.

Níu sitja í stjórn Ríkisútvarpsins og lögðu stjórnarliðar í dag fram lista með sex fulltrúum, eða 66,7 prósent fulltrúa, en þeir fengu 51,1 prósent atkvæða í síðustu kosningum. Stjórnarandstaðan vildi meina að þar með væri verið að ganga á bak samninga um skipan stjórnarinnar frá í sumar.

Menntamálaráðherra sagði skipan í stjórn Ríkisútvarpsins miðast við úrslit síðustu kosninga og vísaði þá til D´Hondt reglunnar sem notuð er við skiptingu þingsæta í kosningum, en ekki almennan hlutfallsreikning.

Heitar umræður urðu um kosninguna á Alþingi í dag. Stjórnarandstaðan sakaði stjórnarmeirihlutann um að ganga á bak orða sinna en forsætisráðherra sagði þingflokksformann Samfylkingarinnar fara með bull.

Ragnheiður Ríkharðsdóttir brýndi stjórnarliða og sagðist treysta því að þingmenn stæðu sína plikt og það gerðu þingmenn stjórnarliðsins, kosningin fór 38 / 25 og stjórnarflokkarnir fá því sex menn en stjórnarandstaðan þrjá í stjórn Ríkisútvarpsins.

Brot úr umræðunum er í myndbandinu hér fyrir ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×