Æskilegt að ásökunum sé ekki beint að röngum aðilum Haukur Viðar Alfreðsson skrifar 10. janúar 2014 18:15 Finnur Árnason, forstjóri Haga. mynd/gva
Finnur Árnason, forstjóri Haga, segir æskilegt að landbúnaðarráðherra og formaður Bændasamtakanna vandi málflutning sinn, en í fréttum Stöðvar 2 í gær segir Sindri Þorgeirsson, formaður Bændasamtakanna, að nauðsynlegt sé að „stöðva þær blekkingar sem hafa tíðkast varðandi upprunamerkingar á landbúnaðarvörum í verslununum“. Þetta tók Sigurður Ingi Jóhannsson landbúnaðarráðherra undir í fréttatímanum. „Æskilegt er að landbúnaðarráðherra og formaður bændasamtakanna vandi málflutning sinn og beini ekki ásökunum að röngum aðilum,“ segir í tilkynningu frá Finni. „Það er nú staðfest og öllum ljóst að íslenskir kjúklingaframleiðendur, svínakjötsframleiðendur og Mjólkursamsalan, fyrirtæki í eigu bænda, hafa flutt inn erlendar landbúnaðarvörur og selt sem innlenda framleiðslu. Ef landbúnaðarráðherra og formaður bændasamtakanna líta á umrædd tilvik sem blekkingu, er eðlilegt að þeir tali skýrt og að þeir beini gagnrýni sinni í rétta átt, en ekki að versluninni.“ Hann segir verslanir Haga fylgjandi upprunamerkingum á landbúnaðarvörum og telja nauðsynlegt að reglur séu settar þar um. Mikilvægt sé í þágu viðskiptavina að upplýsingar um uppruna vöru séu skýrar og réttar. „Þær landbúnaðarvörur sem verslanir Haga flytja inn, m.a. allt kjöt og ostar eru merktar upprunalandi, þannig að viðskiptavinir vita hvaðan varan er sem þeir kaupa og hvaða innihald er í vörunni. Verslanir Haga vilja gjarnan koma að vinnu með ráðherra og bændasamtökunum sem snýr að bættum hag viðskiptavina sinna.“
Mest lesið Fundi forsetanna lokið: Ekkert samkomulag um vopnahlé Erlent Þrjú hjólhýsi „splundruðust“ á Holtavörðuheiðinni Innlent „Sprengingarnar eru að skemma húsin okkar“ Innlent Umfangsmikil gagnárás Úkraínumanna Erlent Sekta Símann fyrir að auglýsa erlenda veðmálasíðu Innlent Sextug kona lést í lestarslysi í Danmörku Erlent Foreldrar verði að halda ró sinni þegar kynferðisbrot eru rædd við börn Innlent Öskurrifust við leigubílstjóra: „Farið til helvítis, þið munuð borga mér“ Innlent Vatnstjón á Kjarvalsstöðum og sautján öðrum stöðum Innlent Stefán Kristjánsson er látinn Innlent Fleiri fréttir Þrjú hjólhýsi „splundruðust“ á Holtavörðuheiðinni Sekta Símann fyrir að auglýsa erlenda veðmálasíðu „Sprengingarnar eru að skemma húsin okkar“ Sveitastjórn Rangárþings ytra gefur út framkvæmdaleyfi fyrir Hvammsvirkjun Foreldrar verði að halda ró sinni þegar kynferðisbrot eru rædd við börn Vatnstjón á Kjarvalsstöðum og sautján öðrum stöðum Kynferðisbrot á leikskóla og tímamótafundur forseta Líkamsárás á borði lögreglu Hjólhýsi hafa „sprungið“ á Holtavörðuheiðinni Fíkniefnarannsókn á Raufarhöfn „langt frá því að vera lokið“ Segir eldislaxinn sannarlega eldislax: „Það eru þeirra mistök“ Segir undirverktaka ekki hafa látið vita af gatinu „Stórfurðulegt“ að bjóða foreldrum ekki strax á fund Litlu mátti muna þegar ferðamaður svínaði fyrir hjón á Hellu Barnið lét foreldra sína vita af brotinu Pólitískur refur og samningamaður mætast „Maður skilur ekki alveg hvernig á þessu stendur“ Spá því að vextir muni ekki lækka frekar á árinu Kynferðisbrot gegn barni til rannsóknar, leiðtogafundur og eldislax Netlaust í Ráðhúsinu vegna öryggisráðstafana Bíða þess enn að ráðherra svari neyðarkalli um mönnun Mannanafnanefnd: Nú má heita Kaleo Stefán Kristjánsson er látinn Ungur leikskólastarfsmaður grunaður um kynferðisbrot gegn barni Spá eldingum á Vesturlandi Þrír handteknir grunaðir um að hafa rænt mann „Hamfarir og ekkert annað“ 30 ára afmæli Blómstrandi daga í Hveragerði „Þetta eru báðir mjög alvarlegir atburðir“: Eldislaxar í Haukadalsá og gat á sjókví í Dýrafirði „Tærnar á manni krullast þegar maður sér svona“ Sjá meira
„Þetta eru báðir mjög alvarlegir atburðir“: Eldislaxar í Haukadalsá og gat á sjókví í Dýrafirði