Jafn mörg banaslys í umferðinni af völdum löglegra og ólöglegra lyfja María Lilja Þrastardóttir skrifar 16. janúar 2014 18:45
Þríhyrningsmerkt lyf, og önnur ómerkt geta haft mikil áhrif á hæfni til aksturs. Þó er það hverjum og einum falið að meta hæfni sína hverju sinni. Á árunum 2003-2012 má rekja fjögur prósent banaslysa í umferðinni til aksturs undir áhrifum lyfja eða sex slys. Athygli vekur að sami fjöldi, fjögur prósent eða 6 manneskjur hafa valdið banaslysi í umferðinni undir áhrifum ólöglegra fíkniefna. Til samanburðar kemur Áfengi, eitt og sér, við sögu í 28 banaslysum eða um átján prósent tilvika. Vakni grunur lögreglu að manneskja sé óhæf til aksturs sökum lyfjadrunga getur hún fært viðkomandi upp á lögreglustöð. Þar fer fram mat á hæfni ökumannsins með aðstoð læknis sem oft sendir viðkomandi aftur út í umferðina. Samkvæmt heimildum ber lögreglu og lækni sjaldnast saman um matið. Íslendingar eiga, samkvæmt skýrslu OECD, heimsmet í notkun þunglyndislyfja. Lyfin skerða flest viðbragðshæfni að minsta kosti á fyrstu vikum inntöku. Í lögum er skýrt kveðið á um áfengis og fíkniefnaakstur en ekkert er tilgreint sérstaklega um þríhyrningsmerkt lyf. Vissulega er tekið fram í lögunum að ökumaður skuli vera „líkamlega og andlega fær um að stjórna ökutæki því, sem hann fer með.“ Þessi grein er því undirorpin skilningi hvers og eins á sinni eigin hæfni. Þá er spurningin, þarf ekki að skerpa á þessu ákvæði laganna til að varna fjölgun slysa með vaxandi notkun lyfja. Að mati Rannsóknarnefndar samgönguslysa (RNSA) hefur ekki tekist nægjanlega vel til að framfylgja ákvæðum um heilbrigðiskröfur sem gerðar eru til ökumanna í íslenskum lögum og reglum.Í meðfylgjandi myndskeiði úr kvöldfréttum Stöðvar tvö má sjá viðtal við forstöðumann umferðarslysanefndar RNSA.
Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Rubio: Ísland í miðjunni Innlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Innlent Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Innlent Bíði og bíði eftir Bjarna Innlent Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Fleiri fréttir Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Sjá meira