Hafa áhyggjur af sjúkraflutningum Stefán Árni Pálsson skrifar 18. janúar 2014 15:03 LSS sendir opið bréf til heilbrigðisráðherra. visir/vilhelm
Slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn hafa sent opið bréf til Kristjáns Þórs Júlíussonar, heilbrigðisráðherra, þar sem hún greinir frá áhyggjum sínum af sjúkraflutningum. Slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn vilja að ný samningsdrög sem gerð hafa verið verði virt og undirrituð eða sest verði strax aftur að samningaborði með jákvæðum og opnum huga til áframhaldandi samreksturs slökkviliðs og sjúkraflutninga. Fram kom á deildarfundi LSS þann 15. janúar að starfsmenn slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu væru einróma samþykkir því að biðla til allra að leggja niður vopnin í deilu ríkis og sveitarfélaga höfuðborgarsvæðisins er varða sjúkraflutninga á starfsvæði SHS. „Okkur þykir miður að málið sé komið í þann farveg að starfsmenn SHS upplifi sig sem börn er horfa á foreldra sína rífast og geta ekki með nokkru móti sæst. Andrúmsloftið er mótað af háværum röddum um sambandsslit ríkis og sveitarfélaga í þessu máli og þar af leiðandi yfirvofandi uppsögnum starfsmanna með mikla sérhæfingu og reynslu sem safnast hefur í áraraðir. Þessir sömu starfsmenn hafa komið á því þjónustustigi sjúkraflutninga sem nú er unnið eftir og væri það að okkar mati glapræði að kasta þeirri vinnu fyrir róða.“ „Það er ótti okkar að ef fram fer sem horfir muni það leiða af sér lækkað þjónustustig og skert viðbragð. Við höfum einnig áhyggjur af því að ef þessi slit verði að veruleika á okkar svæði muni ekki líða á löngu þar til önnur sveitafélög sem veita sambærilega þjónustu lendi í sömu hremmingum með ófyrirsjáanlegum afleiðingum.“ „Okkur finnst það einnig skylda okkar að leiðrétta orð hæstvirts heilbrigðisráðherra, þar sem haft var eftir honum í fjölmiðlum að við værum slökkviliðsmenn sem sinna sjúkraflutningum. Vissulega erum við slökkviliðsmenn en við erum einnig heilbrigðisstarfsmenn skv. lögum og reglugerðum er um þá gilda (lög 34/2012, 3. gr. 23. tölulið). Við sjúkraflutninga erum við sjúkraflutningamenn, lögvernduð heilbrigðisstarfstétt sem sinnir starfinu af alúð og samviskusemi.“ „Það er okkar einlæga ósk að þið leyfið okkur starfsmönnum SHS að vera áfram „fjölhæfir björgunarmenn“. Það verður einungis gert með því að sættast og semja um áframhaldandi farsælt samstarf er lítur að samrekstri slökkviliðs og sjúkraflutninga á höfuðborgarsvæðinu, í þágu allra landsmanna.“Virðingarfyllst fyrir hönd fulltrúa og starfsmanna SHS,Steinþór Darri Þorsteinsson, 1. Fulltrúi deildar LSS hjá SHS.
Mest lesið „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Innlent Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Erlent Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Innlent Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið Innlent Ósáttur við skilyrðin Erlent „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Innlent Konan komin í leitirnar Innlent Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum Innlent Fleiri fréttir „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið „Höfum þegar tekið upp tólið og heyrt í fjármálaráðherra“ Konan komin í leitirnar Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Lögregla kölluð til þegar slegist var um bílastæði Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Hjónasjálfa, gleði og faðmlög í Viðey Nýr borgarstjóri mætir í beina útsendingu Landsnet lagði landeigendur í Hæstarétti Býr sig undir það versta en vonar það besta Fótbolti.net legið niðri í á annan sólarhring Krefjast þess að bankarnir dragi hækkanir til baka Hallgrímur kom í þáttinn sem mótvægi við oflof um Davíð Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Bókstafir verði að tölustöfum Draugagangur, búrtíkur og öngull í rassi „Þetta vita Einar og Björg“ Skotið fór í gegnum handlegg og endaði í öxl Hafa þegar rætt við Daða Má um samgöngusáttmálann Taka ásýnd Varmár alvarlega og stöðva borframkvæmdir Mun dæma meirihlutann af verkunum Sjálfstæðismenn og Framsókn í eina sæng í Múlaþingi „Orð hennar og þessar upphrópanir ekki til sóma“ Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Kolbeinn tekur við af Bryndísi sem ráðuneytisstjóri Sjá meira