Ekki nógu mikill metnaður fyrir náminu Kristjana Arnarsdóttir skrifar 19. janúar 2014 13:45 „
Það er greinilega ekki nógu mikill metnaður fyrir þessu námi innan heilbrigðis- og menntakerfisins,“ segir Guðrún Ebba Ólafsdóttir, einn stofnandi Rótarinnar, en Rótin óskaði eftir svörum frá Kristjáni Þór Júlíussyni heilbrigðisráðherra og Illuga Gunnarssyni menntamálaráðherra vegna fyrirkomulags menntunar áfengis- og vímuefnaráðgjafa. Tilefni erindisins var að afla upplýsinga um stöðu mála og áform stjórnvalda um bætta menntun þeirra sem meðhöndla fólk með fíknivanda. Svörin hafa nú borist og segir Guðrún að af þeim megi ráða að málið sé í ákveðnum ólestri. Námið tilheyri engu skólastigi og að litlar sem engar kröfur séu gerðar til þeirra sem annist kennslu ráðgjafanna. „Við förum fram á að það verði sett námskrá fyrir þetta nám og að það heyri undir ákveðið skólastig. Helst viljum við fá þetta innan heilbrigðissviðs háskólans,“ segir Guðrún. Hún segir að meðferðarkerfið á Íslandi sé borið upp af fólki sem ekki sé í raun og veru menntað til að starfa innan heilbrigðisgeirans. „Okkur finnst mikilvægt að á meðan við skilgreinum áfengis- og fíknisjúkdóma sem sjúkdóma að þá eigi að fara með þá sem slíka. Það þarf því að setja skýrari ramma utan um þetta.“ Víða í heiminum er meirihluti ráðgjafa með BA/BS-gráðu eða meiri menntun, þetta á við um 71% meðferðaraðila samkvæmt rannsókn sem gerð var í Norðvesturríkjum Bandaríkjanna árið 2000. Á Íslandi er því hins vegar þannig farið að menntun ráðgjafa er ekki einu sinni hluti af hinu formlega skólakerfi og engin námskrá er til í faginu Í ljósi þess að um 80% kvenna sem fara í meðferð hafa orðið fyrir ofbeldi telur Rótin einsýnt að sú alvarlega staðreynd verði höfð til hliðsjónar við endurskoðun ráðgjafanámsins og við námskrárgerð í faginu. Þá er tímabært að boðið sé upp á fullt nám í fíknifræðum við háskóla hér á landi með tilheyrandi rannsóknarstarfi í faginu.
Mest lesið Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri Innlent Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Erlent Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Innlent Vasaþjófnaður aukist að undanförnu Innlent Fleiri fréttir Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Skipulagt niðurbrot á réttindum launafólks hafi náð til Íslands „Konur upplifa ekki öryggi í íslensku samfélagi“ Sjá meira