„Viðvaningar á vakt“ Haukur Viðar Alfreðsson skrifar 2. janúar 2014 13:30 Eiður hefur skrifað 1.375 bloggfærslur undir yfirskriftinni Molar um málfar og miðla. mynd/valli
Eiður Svanberg Guðnason, málfarsbloggari, náttúruverndarsinni og fyrrverandi stjórnmálamaður, sendir lesendum sínum áramótakveðju á bloggsíðu sinni í dag. Hann hefur skrifað 1.375 færslur undir yfirskriftinni Molar um málfar og miðla og segir hann í nýjustu færslunni að molunum kunni að fækka á árinu sem nú fer í hönd. „Það eru bara persónulegar ástæður,“ segir Eiður í samtali við Vísi um ástæður þess að molunum fækkar. „En ég er ekki hættur. Þetta verður kannski eitthvað örlítið sjaldnar, þegar ég hef tíma til að lesa og hlusta.“ Aðspurður segir Eiður að erfitt sé að dæma um það hvort fjölmiðlafólk taki mark á ábendingunum. „Ég get svo sem ekki nefnt nein beinhörð dæmi. En sumar villur sem ég var að tönnlast á sjást sjaldnar. Ég er til dæmis alveg hættur að heyra það á RÚV að kjörstaðir hafi opnað. Hins vegar sér maður þetta ennþá í netmiðlunum. Ég las um daginn að vegur hefði opnað. Hvern fjandann opnaði vegurinn?“ Ber einhver fjölmiðill af í málfari og stafsetningu að mati Eiðs? „Nei, ég hef aldrei gert slíka úttekt. Maður sér oft um helgar, og þetta á við um flesta fjölmiðlana, að það eru viðvaningar á vakt. Þetta er það sem ég hef gagnrýnt mest. Það er ekkert gæðaeftirlit. Það situr bara hver í sínu horni og setur beint inn. Þetta eru oft áberandi villur sem standa kannski í sólarhring áður en þær eru leiðréttar, ef þær eru þá leiðréttar. Svo sér maður oft líka villur í fyrirsögnum. Ég hef stundum nefnt það, það er eins og ritstjórar lesi ekki sína eigin miðla. Það þarf einhver að lesa fréttirnar yfir áður en þær birtast á skjánum hjá manni.“
Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Rubio: Ísland í miðjunni Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Innlent Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Innlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Fleiri fréttir Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Sjá meira