Innflutningur á rafsígarettum með nikótíni óheimill Fanney Birna Jónsdóttir skrifar 3. janúar 2014 15:42 Gaxa.is selur rafsígarettur án nikótíns. Mynd/gaxa.is
Lyfjastofnun, Neytendastofa og Tollstjóri hafa sent frá sér yfirlýsingu þar sem bent er á að innflutningur á rafsígarettum með nikótíni til endursölu er óheimill nema markaðsleyfi sé fyrir hendi. Ef markaðsleyfi er ekki til staðar eru rafsígarettur sem innihalda nikótín stöðvaðar í tolli. Kristján Gunnlaugsson yfirtollvörður í Keflavík sagði í samtali við Vísi að ekki væri mikið um að þeir þyrftu að stöðva innflutning á slíkum vörum í tollinum, en það kæmi þó fyrir. Rafsígarettur án nikótíns eru seldar á ýmsum stöðum hér á landi en enn sem komið er hefur ekki verið gefið út markaðsleyfi fyrir rafsígarettur með nikótíni í hérlendis. Gestur Hermannsson, eigandi Gaxa.is, sem er einn þeirra aðila sem selur rafsígarettur segir að íslenskt regluverk sem byggist oft á erlendum reglum geti orðið bjagað vegna smæðar landsins. „Í Þýskalandi og Póllandi er nikótín löglegt til innflutnings, en Danmörk og Ísland leyfa það ekki,“ segir Gestur. Gaxa.is hefur verið í sambandi við Lyfjastofnun til að sækja um markaðsleyfi á nikótíninu fyrir rafsígaretturnar. „Við erum að vinna í því að sækja um formleg leyfi á þessu en ætlum aðeins að sjá hvernig landslagið verður. Það var mikill miskilningur uppi fyrst um innihaldið í þessu, margir sem héldu að þetta væri algert eitur, það er rangt,“ segir Gestur. Hann bætir við að vissulega þurfi nánari rannsóknir á því hvert innihald þessara sígarettna er. „En það eru nú þegar komnar fram ýmsar rannsóknir sem koma vel út,“ segir Gestur.
Mest lesið Ekki lengur vafi á því hver hinn látni er Innlent Líkfundur við Austurbæjarskóla Innlent Umbúðirnar gallaðar og hakkið fer aftur í bakka Innlent Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Innlent Yfirlýsing Landskjörstjórnar: „Fullyrðing Morgunblaðsins er alfarið röng“ Innlent Flaug hvorki með gömlu né nýju Air Force One Erlent Hafa borið kennsl á hinn látna Innlent Hóteláform Hreiðars strand vegna vegleysu Innlent Hólmbert bjargaði manni úr bíl sem stóð í ljósum logum í Kóreu Innlent Ungir Miðflokksmenn vildu ekki taka þátt í Gleðigöngunni Innlent Fleiri fréttir Gæti gjörbreytt því hvernig fólk kaupir inn Skemmdir á nýrri vatnsleiðslu til Eyja Leita svara við aldargamalli ráðgátu sólarinnar Gætu þurft að skila skyndibitaumbúðum Gripinn með stolið kreditkort og handtekinn Hafa borið kennsl á hinn látna Einn um borð þegar eldur kviknaði í fiskibát Kveikt á götulýsingu í sólmyrkva á stofnbrautum Líkfundur við Austurbæjarskóla Hólmbert bjargaði manni úr bíl sem stóð í ljósum logum í Kóreu Umbúðirnar gallaðar og hakkið fer aftur í bakka Gera ráð fyrir óvenjulangri aðalmeðferð í Reykholtsmálinu Tók konu kyrkingartaki nóttina eftir dóm og verður lengur í haldi Segir efnahagsmálin og verðbólguna að þróast í rétta átt Kristrún vísar ásökunum um sinnuleysi á bug Ekki lengur vafi á því hver hinn látni er Yfirlýsing Landskjörstjórnar: „Fullyrðing Morgunblaðsins er alfarið röng“ Vill að vinnu við gerð áhættumats verði flýtt Leita óþekkts árásarmanns á Þjóðhátíð Kæra varðhald þriðja mannsins til Landsréttar Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Þriðji maðurinn úrskurðaður í gæsluvarðhald Líkur á rigningu í Reykjavík þegar almyrkvinn gengur yfir Gæsluvarðhalds krafist yfir þriðja manninum Björgunarsveitir sinntu tveimur slösuðum ferðamönnum Hóteláform Hreiðars strand vegna vegleysu ,,Þetta eru kosningaherferðarfundir Kristrúnar Frostadóttur fyrir Já til að sjá'' Fyrir fólk sem búi á almyrkvaslóðinni sé nóg að „vera úti í garði og upplifa allt“ Ungir Miðflokksmenn vildu ekki taka þátt í Gleðigöngunni „Við sem samfélag þurfum að standa keik á móti þessu“ Sjá meira