Fjallað um gosið í Eyjafjallajökli í 60 mínútum 4. janúar 2014 07:00 Scott Pelley og Haraldur á Eyjafjallajökli í apríl 2010. mynd/haraldurólafsson „
Við gengum saman á jökulinn í nokkur skipti til að skýra jarðfræðina að baki gosinu sem þá stóð yfir. Við fórum upp á gígbrún og það verður forvitnilegt að sjá frásögn þessa virta fréttamanns,“ segir Haraldur Sigurðsson eldfjallafræðingur um umfjöllun 60 Minutes um Eyjafjallajökulsgosið sem verður frumsýnd á CBS-sjónvarpsstöðinni annað kvöld, og viku síðar á Stöð 2. Í umfjöllun 60 Minutes um eldgosið í Eyjafjallajökli fylgdi Haraldur tökuliði um jökulinn og útskýrði framvindu gossins sem hófst 14. apríl 2010 og stóð til 23. maí. Til stóð að fjalla um gosið strax við heimkomu til Bandaríkjanna, en það hefur dregist til þessa dags af ástæðum sem Haraldi eru ekki kunnar. Haraldur segir að Pelley hafi verið helst forvitinn um samspilið í náttúrunni; af hverju eldgos verða og hvað er svo sérstakt við Ísland í því samhengi. „Hann hafði líka áhuga á áhrifum á flugsamgöngur, sem allir muna eftir. Þá fórum við inn á það að 313 flugvöllum var lokað í Evrópu – að ástæðulausu að mínu viti,“ segir Haraldur. Vart þarf að kynna fréttaskýringaþáttinn 60 mínútur fyrir landsmönnum, eða Scott Pelley sem Haraldur ber vel söguna. Pelley er að hans sögn mikill séntilmaður og fagmaður sem gaman hafi verið að kynnast. „Hann er mjög elskulegur, og heiðursmaður vil ég segja. Hann er mjög duglegur, íþróttamaður sem er farinn í líkamsrækt löngu áður en aðrir vakna. Afar þægilegur í allri umgengni en við vorum saman í nokkra daga á jöklinum og næsta nágrenni.“ Haraldur lýsir því að tökuliðið var á Gígjökli þegar mikið krapahlaup braust þar fram – og þess vegna hættusvæði. „Það truflaði Scott ekki neitt og hann arkaði þar á undan öllum, inn á hættusvæðið. Það gekk allt vel enda er þessi maður búinn að fara víða og leggja líf sitt að veði í sínum fréttaflutningi,“ segir Haraldur. Þess má geta að Pelley til aðstoðar var ásamt fleirum þingkona Sjálfstæðisflokksins, Elín Hirst. Hún vann ásamt framleiðandanum Rebeccu Peterson dag og nótt við undirbúning áður en upptakan á jöklinum hófst. Tæknimenn sem unnu við upptökuna voru alls tíu og frábært lið í alla staði, að sögn Haraldar.
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda Innlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Innlent NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Erlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Fleiri fréttir Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Sjá meira