Íslenskir frumkvöðlar í Danmörku Hjörtur Hjartarson skrifar 3. janúar 2014 19:30 Jón Ingi Bergsteinsson
Tveir íslenskir, nýútskrifaðir verkfræðingar stofnuðu í vor fyrirtæki í Danmörku sem sérhæfir sig þróun hugbúnaðar innan heilbrigðissviðsins. Nóg hefur verið að gera frá byrjun og eru starfsmenn fyrirtækisins nú þegar orðnir sjö talsins. Þeir félagar hafa tekið stefnuna á erlendan markað. Jón Ingi Bergsteinsson, nam heilbrigðisverkfræði í háskólanum í Álaborg ásamt félaga sínum, Páli Jóhannessyni. Á miðju lokaárinu í námi ákváðu þeir félagar að stofna fyrirtæki. En hvað var það sem knúði þá til að stofna þetta fyrirtæki? „Það var eiginlega bara þessi íslenski drifkraftur." Ásamt því hafi þeir félagar notið góðs af því að vel er tekið á móti frumkvöðlum í Danmörku. Þeir fengu aðstoð lögfræðinga við pappírsvinnuna sér að kostnaðarlausu og fullbúið skrifstofuhúsnæði sem leigt var fyrir lítið fé. „Danirnir eru frekar duglegir við að styðja við nýsköpunarfyrirtæki og sprotafyrirtæki. Þeir eru með margar mismunandi lausnir fyrir ung fyrirtæki sem geta aðstoðað þig við að koma undir þig fótunum."Snjallsímaforrit sem leyfir sjúklingum að stilla rúm sitt með einföldum hætti er á meðal þess sem Medei er með í þróunEngir fjárfestar komu að verkefninu í upphafi en Jan Ovesen, læknir til þrjátíu ára keypti sig inn í fyrirtækið í sumar. En það er ekki nóg að stofna fyrirtæki og koma sér fyrir á skrifstofu, það þarf að bjóða fram einhverja hugmynd eða vöru sem kúnninn er ánægður með. Og það hafa piltarnir gert. Eitt af því sem hefur vakið mikinn áhuga er sjallsímaforrit sem tengt er rúmi sjúklinga sem geta í kjölfarið stillt það eftir sínu höfði með einföldum hætti. Þá hefur hugbúnaður sem skráir og heldur utan um ýmislegt tengt heilsufari sjúklinga sem dvelja heima hjá sér, fengið góðar viðtökur. Sjúklingur mælir sjálfur, til dæmis blóðþrýsting eða blóðsykur, upplýsingarnar flytjast rafrænt beint til læknis viðkomandi sem sparar bæði tíma og peninga. Jón Ingi segir að vonir standi til að fyrirtækið vaxi hratt og verði innan tíðar komið á erlendan markað.
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda Innlent Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Innlent NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Erlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Fleiri fréttir Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Sjá meira