Stefán Jón sækir um útvarpsstjórastöðuna Jakob Bjarnar skrifar 6. janúar 2014 16:26 Stefán Jón Hafstein, sá fyrsti sem kemur fram í dagsljósið sem umsækjandi um stöðu útvarpsstjóra.
Stefán Jón Hafstein ætlar að sækja um stöðu útvarpsstjóra sem auglýst hefur verið laus til umsóknar en umsóknarfrestur rennur út 12. þessa mánaðar. Stefán Jón er sá fyrsti sem vitað er til að muni sækja um en margir hafa verið nefndir til sögunnar - en það þá fylgt þeirri sögu að þeir ætli ekki að sækja um. Stefán Jón upplýsti þetta í útvarpsþættinum Virkir morgnar í morgun. Stefán Jón Hafstein starfar hjá Þróunarsamvinnustofnun Íslands og dvalið starfa sinna vegna í Afríku undanfarin ár. En hann stýrði Rás 2 í árdaga þeirrar útvarpsstöðvar og vakti verðskuldaða athygli fyrir skelegga framgöngu á öldum ljósvakans. Vísir hafði samband við Stefán Jón og spurði hann meðal annars hvort ætla mætti að pólitísk fortíð hans, þá sem einn helsti bandamaður Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur og R-listans á sínum tíma, gæti ekki reynst honum óþægur ljár í þúfu; þá að teknu tilliti til þess að Sjálfstæðisflokkurinn og Framsóknarflokkurinn hafa meirihluta í stjórn RÚV. Hann svaraði því að hætti hússins, líkt og hann væri að eiga við innhringjanda í útvarpsþáttinn Þjóðarsálina: „Ég er bara að undirbúa umsókn og ætla ekkert að segja meira um hana. Þetta er ekki framboð heldur bara umsókn um laust starf.“
Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Rubio: Ísland í miðjunni Innlent Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Innlent Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Fleiri fréttir Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Sjá meira