Stefnir öryggi höfuðborgarbúa í hættu Höskuldur Kári Schram skrifar 7. janúar 2014 13:47 Jón Gnarr, Kristján Þór Júlíusson og Jón Viðar Matthíasson.
Sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu saka stjórnvöld um vanefndir á greiðslu kostnaðar vegna sjúkraflutninga og segja að þessi afstaða stefni öryggi íbúa á höfuðborgarsvæðinu í hættu. Þetta kemur fram í ályktun stjórnar Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu. Samningur milli ríkisins og Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins vegna sjúkraflutninga rann út í árslok 2011. Ekki hefur verið unnt að endurnýja þennan samning vegna ágreinings um kostnað. Deiluaðilar fengu KPMG til að meta kostnað og á þeim grundvelli voru gerð drög að nýju samkomulagi í febrúar á síðasta ári. Ríkið hefur hins vegar ekki viljað fallast á kostnaðarmat KPMG. Ríkið greiðir því slökkviliðinu í samræmi við gamla samninginn. Sveitarfélögin fullyrða að á meðan málið sé óleyst séu þau að niðurgreiða sjúkraflutninga fyrir ríkið.Jón Viðar Matthíasson slökkviliðsstjóri höfuðborgarsvæðisins segir að þessi óvissa skapi mikla ólgu um starfsemi sjúkraflutninga. „Sem er bagalegt því þetta er öryggisþjónusta sem við verðum að sinna. Ef við tökum síðustu tíu ár þá hefur sjúkraflutningum fjölgað um 23 prósent á meðan útköllum hjá slökkviliðinu hefur fækkað um sjö prósent. Þannig að umfang sjúkraflutninga hefur aukist gríðarlega,“ segir Jón Viðar. Hann segir að ríkið skuldi nú þegar hátt í milljarð vegna sjúkraflutninga fyrir árin 2012 og 2013. Stjórn Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins áskilur sér allan rétt til að innheimta útistandandi fjárhæðir verði ekki samið um annað.„Sættum okkur ekki við þetta lengur“Jón Gnarr, borgarstjóri segir að þessi afstaða stjórnvalda stefni öryggi íbúa á höfuðborgarsvæðinu í hættu. „Ég er búinn að vera að garfa í þessu í þrjú ár. Ég veit ekki hvað ég er búinn að tala við marga ráðherra um þetta og nú er bara svo komið að við sættum okkur ekki við þetta lengur. Við erum að niðurgreiða þjónustu sem ríkið á lögum samkvæmt að sinna,“ segir Jón. Hann segir að næsta skref sé að biðja ríkið um að semja um verklok til að leysa slökviliðið frá því að sinna þessari þjónustu. „Mig grunar eins og ég hef sagt áður að menn séu að gæla við það að spara í sjúkraflutningum. En það er bara ein leið til að spara í sjúkraflutningum og það er með því að draga úr þjónustustiginu og mér finnst það mikil óheillaþróun,“segir Jón Gnarr.Gagnrýnir kostnaðarmatKristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra ítrekar að ríkið hafi aldrei fallist á kostnaðarmat KPMG. Því hafi aldrei verið gengið frá samningum í febrúarmánuði síðastliðinum. „Það hefur enginn samningur verið gerður. Samningur er ekki til fyrr en báðir samningsaðilar hafa undirritað hann og meðan svo er þá er greitt eftir fyrri samningi og öll ákvæði hans eru virt, bæði af hálfu ríkissins og Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins. Slökkviliðið og sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu geta ekki ákveðið að hækka greiðslur einhliða. Það verður að semja um slíkt eins og í eðlilegum samningum,“ segir Kristján Þór. Samkvæmt mati KPMG er sanngjörn greiðsla fyrir sjúkraflutninga 856 milljónir króna á ári. Ríkið telur að þetta sé alltof há upphæð. „Það er ekkert óeðlilegt við það að ég fái færi til þess að yfirfara þá vinnu sem hefur verið unnin. Þeir útreikningar sem ég hef fengið benda til þess að kostnaður sem að sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu eru að tala um sé ekki í samræmi við aðrar greiðslur sem verið er að greiða fyrir þessa bráðnauðsynlegu þjónustu á landsbyggðinni. Það er nauðsynlegt að greina þetta betur og þeir útreikningar sem ég hef fengið benda til þess að ríkissjóður sé að greiða umfram það sem að sjúkraflutningar kosta. Það er eitthvað sem er ekki eðlilegt,“ segir Kristján. Kristján vill þó reyna til þrautar að ná samkomulagi. „Ég tel að það sé alveg samningsgrunnur í þessu verkefni og vil gjarnan leita allra leiða til að nálgast hann. Ef að það kemur upp úr dúrnum að það sé algerlega óbrúanlegt bil á milli aðila þá að sjálfsögðu verða menn að horfa til þeirra ákvæða í samningi varðandi verklok. en ég vona svo sannarlega að til þess þurfi ekki að koma,“ segir Kristján.
Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Rubio: Ísland í miðjunni Innlent Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Innlent Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Fleiri fréttir Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Sjá meira