Hækkun gjalds í bílastæðahúsum á skjön við yfirlýsingar meirihluta borgarstjórnar Höskuldur Kári Schram skrifar 7. janúar 2014 15:06 Halldór Halldórsson oddviti sjálfstæðismanna í Reykjavík.
Halldór Halldórsson oddviti sjálfstæðismanna í Reykjavík segir að sú ákvörðun Bílastæðasjóðs Reykjavíkur um að hækka gjaldskrár í bílastæðahúsum um allt að 200 prósent sé á skjön við yfirlýsingar meirihluta borgarstjórnar um að halda aftur af gjaldskrárhækkunum á þessu ári. Borgarráð ákvað í nóvembermánuði síðastliðnum að falla frá öllum gjaldskrárhækkunum sem áttu að taka gildi um áramótin. Borgin vildi með þessu taka „frumkvæði í því að sporna við verðbólgu og auka kaupmátt í aðdraganda kjarasamninga“ eins kom fram í yfirlýsingu frá meirihluta borgarstjórnar. „Við erum því tilbúin að draga þetta til baka til að leggja okkar af mörkum til að koma í veg fyrir víxlverkun þar sem enginn græðir og allir tapa,“ sagði Björn Blöndal aðstoðarmaður Jóns Gnarr borgarstjóra í samtali við Vísi þann 14. nóvember síðastliðinn. Gjaldskrá Bílastæðasjóðs Reyjavíkur í bílastæðahúsum hækkaði hins vegar um allt að 200 prósent um áramótin. Halldór Halldórsson oddviti sjálfstæðismanna í Reykjavík segir að þetta komi á óvart og sé á skjön við yfirlýsingar meirihluta borgarstjórnar. „Þetta kemur eins og þruma úr heiðskíru lofti. Ég átti ekki von á þessu. Skýringin er að þetta hafi ekki hækkað í mörg ár en þetta er samt sem áður ekki í samræmi við yfirlýsingar meirihlutans um að halda aftur af gjaldskrárhækkunum,“ segir Halldór. Hann segir að þetta sendi neikvæð skilaboð út í samfélagið og ætlar að taka málið upp innan borgarstjórnarflokks sjálfstæðismanna.
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda Innlent Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Innlent NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Erlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Fleiri fréttir Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Sjá meira