Sakar skipstjóra Herjólfs um að vinna gegn Baldri Kristján Már Unnarsson skrifar 8. janúar 2014 11:21 Breiðafjarðarferjan Baldur hefur sinnt siglingum milli lands og Eyja í samtals 6 vikur. Mynd/ Óskar P. Friðriksson.
Skipstjóri og framkvæmdastjóri Sæferða í Stykkishólmi, Pétur Ágústsson, segir að borið hafi á því oftar en einu sinni að skipstjórnarmenn Herjólfs hafa látið hafa eftir sér í fjölmiðlum niðrandi ummæli um ferjuna Baldur. Í grein í Framkvæmdafréttum Vegagerðarinnar segir Pétur að málið virðist vera það að umræddir skipstjórnarmenn vilji með öllum ráðum koma í veg fyrir að Baldur sé reyndur meira en til þessa á siglingarleiðinni milli Landeyjahafnar og Eyja. Framkvæmdastjóri Sæferða segir ferjuna Baldur hafa siglt á leiðinni samtals í sex vikur „með óumdeilanlega mjög góðum árangri“. Tilefni orða Péturs er skýrsla sem unnin var fyrir Vegagerðina um viðhorf skipstjóra sem siglt hafa um Landeyjahöfn. Pétur gerir meðal annars athugasemd við þessa málsgrein: „Einn viðmælanda hefur verið bæði á Herjólfi og Baldri og segir Baldur geta snúist á lensi við innsiglingu til hafnarinnar eins og Herjólfur.“ Pétur segir að enginn skipstjóri á Baldri hafi verið skipstjóri á Herjólfi. Eini yfirmaður Herjólfs sem var á Baldri hafi ekkert haft með siglingu skipsins að gera. Sá hafi verið stýrimaður og hafði eingöngu umsjón með hleðslu skipsins. „Varðandi snúning skipsins þá er það með öllu rangt að Baldur snúist eins og Herjólfur í innsiglingunni. Öll skip snúast með einhverjum hætti við vissar aðstæður en fullyrðing um að Baldur snúist eins og Herjólfur við sömu aðstæður er alröng,“ segir Pétur. Hann gerir einnig athugasemd við að birt sé ljósmynd af Baldri í innsiglingu Landeyjahafnar með þessum texta: „Telja skipstjórar Herjólfs . . . Eins og glöggt sést á myndum sem teknar hafa verið af þeim skipum sem siglt hafa til Landeyjahafnar þá hefur verið teflt á tæpasta vað sem er óréttlætanlegt með farþegaskip“. Framkvæmdastjóri Sæferða segir um þetta: „Er ljóst að umræddir umsagnaraðilar hafa verið að „veifa“ mynd af Baldri í innsiglingu til hafnarinnar sem hefur átt að sanna að óvarlega sé farið. Þessi mynd er tekin úr sjónarhorni af bryggjunni sem gefur ekki á neinn hátt rétta mynd af umræddri innsiglingu skipsins. Auk þess sem umsagnaraðilarnir hafa ekki neinar forsendur til að gefa slíka umsögn er Baldur varðar þar sem þeir voru ekki um borð í skipinu eða hafa rætt atvikið við skipstjórnendur Baldurs.“ Framkvæmdastjóri Sæferða segir að lokum: „Það hefur því miður borið á því oftar en einu sinni að skipstjórnarmenn Herjólfs hafa látið hafa eftir sér niðrandi ummæli um ferjuna Baldur og það meira að segja í fjölmiðlum. Málið virðist vera það að umræddir skipstjórnarmenn vilji með öllum ráðum koma í veg fyrir að Baldur sé reyndur meira en til þessa (samtals 6 vikur með óumdeilanlega mjög góðum árangri), á siglingarleiðinni. Undirritaður tekur undir álitið að því leyti að ekki sé réttlætanlegt að taka óþarfa áhættu, þó ekki sé talað um tæpasta vað. Skipstjórnarmenn Baldurs telja af og frá að þessi ummæli geti átt við ferðir Baldurs og ekki sé nein áhætta tekin umfram það sem venjulega má reikna með þegar skip fer á sjó.“
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda Innlent Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Innlent NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Erlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Fleiri fréttir Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Sjá meira