Hvetur fyrirtæki til að halda aftur af verðhækkunum Höskuldur Kári Schram skrifar 8. janúar 2014 12:57 Þorsteinn Víglundsson, framkvæmdastjóri SA.
Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segir að boðaðar verðhækkanir á innlendum vörum sendi neikvæð skilaboð út á vinnumarkaðinn. Fyrirtæki þurfi að sýna ábyrgð og halda aftur af hækkunum til að stuðla að sátt. Birgjar hafa boðað allt að 7 prósenta hækkun á innlendum vörutegundum þrátt fyrir að gengi krónunnar hafi styrkst á síðustu vikum. Hækkunin kemur á sama tíma og launþegar greiða atkvæði um nýgerða kjarasamninga sem fela í sér launhækkun upp á 2,8 prósent. Eitt helsta markmið samninganna var að tryggja lága verðbólgu og auka kaupmátt.Arnar G. Hjaltalín formaður Drífanda stéttarfélags segir að verið sé að gera grín að launafólki með þessum hækkunum . Hann hvetur launþega til að fella samningana. „Þessar verðhækkanir sem við erum búin að sjá nú þegar eru ekkert eðlilegar. 21% hækkun á komugjaldi til læknis, 20% á heilsugæslustöðvar og boðaðar verðhækkanir 5 til 7% á matvöru. Þegar búið verður að samþykkja samningana þá fyrst fáum við holskeflu verðhækkana yfir okkur,“ segir Arnar.Þorsteinn Víglundsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir að þessar verðhækkanir sendi röng skilaboð út í samfélagið. „Við erum sameiginlega að reyna að takast á við verðbólguna og ef að það á að takast þá þurfa allir aðilar sem koma að verðlagsákvörðunum að sitja á sér. Ekki bara í januar og febrúar heldur til lengri tíma litið. Við þurfum að brjóta þennan vítahring víxlhækkana. Við teljum að það sé tækifæri núna með hófstilltum kjarasamningi,“ segir Þorsteinn. Hann hvetur fyrirtæki til að halda aftur af verðhækkunum. „Það er alveg ljóst að það mun hafa neikvæða áhrif hvort sem litið er til tímapunktisins núna eða þegar kemur að endurnýjun kjarasamninga næsta haust. Við höfum sagt að boltinn sé hjá fyrirtækjum. Þau verða að sýna ábyrgð og halda aftur af verðhækkunum,“ segir Þorsteinn
Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Rubio: Ísland í miðjunni Innlent Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Innlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Fleiri fréttir Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Sjá meira