Mátti ekki tæpara standa í bruna í Keflavík Gissur Sigurðsson skrifar 8. janúar 2014 13:07 Frá brunavettvangi í gær. MYND/VÍKURFRÉTTIR
Nágranni manns og konu sem var bjargað á síðsutu stundu úr brennandi raðhúsi í Reykjanesbæ í gærkvöldi, segir að tæpara hafi varla mátt standa. Parið var útskrifað af slysadeild Landspítalans að lokinni skoðun í nótt. Fólkið var gengið til náða en hafði sem betur ferð lokað hurðinni að svefnherberginu, en eldurinn kviknaði í stofunni. En það var fyrir árvekni og skjót viðbrögð nágrannanna Bryndísar Sigurðardóttur og eiginmanns hennar að hjálp barst í tæka tíð: „Ég ætlaði að horfa á þátt sem átti að byrja klukkan níu og ég lagði mig aðeins á undan og bað manninn minn um að vekja mig,“ segir Bryndís. Svo þegar hann gerði það bað ég hann um að opna gluggann og þá fann ég rosalega reykjarlykt. Ég rauk út á verönd og sá þá reykinn út um gluggann hjá þeim. Ég kalla á hann og hann hoppar yfir grindverkið og ég hljóp inn og hringi á 112.“ Bryndís segir að maður hennar hafi náð að brjóta rúðu í íbúðinni og hjálpa konunni út. „Þegar hann var að því kom lögregla og slökkvilið og þeir hjálpuðu kærastanum hennar út.“ Að sögn Bryndísar var gríðarlega mikill reykur í íbúðinni og segist hún telja að ekki hafi mátt tæpara standa. Íbúðin og allt innbú eru stórskemmd, en lögregla rannsakar nú eldsupptök.
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda Innlent Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Innlent NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Erlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Fleiri fréttir Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Sjá meira