Innlent

Eir fær 22 milljóna neyðaraðstoð

Garðar Örn Úlfarsson skrifar
Eir fær neyðaraðstoð frá borginni með skilyrðum.
Eir fær neyðaraðstoð frá borginni með skilyrðum. Fréttblaðið/Valli
Reykjavíkurborg mun styrkja hjúkrunarheimilið Eir um 22 milljónr króna „til að verða við áskorun sjálfseignarstofnunarinnar um neyðaraðstoð,“ eins og segir í fundargerð borgarráðs frá fimmtudegi.

Með þessu á að „freista þess að tryggja rekstrarhæfi stofnunarinnar á þessu ári og framgang nauðasamninga félagsins.“

Styrkurinn er veittur með fyrirvara um að ríkið standi við fyrirheit um rekstur 20 dagdvalarrýma fyrir heilabilaða í þjónustumiðstöð við Spöngina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×