Erfitt að kveða nasismann í kútinn Jakob Bjarnar skrifar 31. janúar 2014 10:49 Illugi og Hrafn vinna nú að endurritun frægrar bókar sinnar, Íslenskir nasistar, sem hefur verið ófáanleg um árabil.
Bræðurnir og rithöfundarnir Illugi og Hrafn Jökulssynir fást nú við að uppfæra fræga bók sína Íslenskir nasistar. Bókin kom út fyrir um 25 árum, en það var Tákn sem þá gaf út, og hefur verið algerlega ófáanleg um árabil. Fréttatíminn greindi frá þessu í morgun.Þagnarmúr um íslenska nasista Illugi segir í samtali við Vísi, spurður um hvernig standi á þessum áhuga á nasistum, að það sé bara eins og gengur, menn fá áhuga á því sem þeir fást við. „Á þeim tíma þegar bókin kom út ríkti enn mjög mikil þöggun um íslenska nasista, þótt Ásgeir Guðmundsson sagnfræðingur hafi reyndar verið byrjaður að rjúfa þá þöggun aðeins. En það var merkilegt hve mikill þagnarmúr hafði verið reistur um þennan þátt sögunnar og að fólk skyldi til dæmis vita næstum ekkert um þá stórmerkilegu staðreynd að sonur forseta Íslands hefði verið í SS-sveitum Þjóðverja á stríðsárunum. Eða að Íslendingi hefði að kröfu íslenskra stjórnvalda verið sleppt við refsingu í Noregi fyrir samvinnu við þýsk hernámsyfirvöld,“ segir Illugi. Hann segir að samvinnan við Hrafn, litla bróður sinn, á sínum tíma hafa verið óaðfinnanleg og árangursrík en Hrafn kom að verkinu þegar stefndi í óefni vegna tímahraks. En aftur að nasistunum íslensku.Margir létu aldrei af trúnni „Flestir íslenskir nasistar gengu til liðs við þessa stefnu áður en ljóst varð hve grimmilegt og miskunnarlaust fyrirbæri var þarna á ferðinni, og flestir sögðu líka skilið við nasismann þegar það fór að koma í ljós. En einhverjir létu aldrei af trúnni.“ Bræðurnir vinna nú að endurritun bókarinnar en þeir segja að þrátt fyrir að þeir hafi á sínum tíma komist yfir mikið magn upplýsinga þá hafi eitt og annað komið upp úr dúrnum á þeim 25 árum sem liðin eru frá því að bókin kom út. Og þeir kalla eftir upplýsingum um íslenska nasista.Merkilegt tímabil sögunnar „Þetta er merkilegt tímabil sögunnar, auðvitað sorglegt að einhverjir Íslendingar skyldu villast inn í þennan hugarheim, en að sumu leyti réðist það af tíðarandanum. Það má segja að þekking okkar á þessum tímum verði okkur alltaf viðvörunarmerki.“ Illugi lætur það liggja á milli hluta hvort það sé eitthvað í tíðarandanum nú sem kallar á að bókin komi fram aftur nú. „Við sjáum það í Evrópu og víðar að þar hefur ekki tekist að kveða ný-nasisma í kútinn, þótt ótrúlegt megi virðast. Þekking á fyrirbærinu er því alltaf nauðsynleg. Ef þú átt við hvort ég telji að einhver nasismi sé í uppsiglingu á Íslandi núna, þá er fjarri því. Sem betur fer. En við þurfum alltaf að hafa augun opin - það bjóst heldur enginn í Þýskalandi við því á sínum tíma að þjóðin yrði auðveld frá fyrir svo viðurstyggilega múgsefjun sem fólst í nasismanum.“
Mest lesið Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Leggjast gegn því að útivistartími 10 til tólf ára verði lengdur að vetri Innlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Erlent Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Innlent Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Innlent Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Innlent Fleiri fréttir Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Leggjast gegn því að útivistartími 10 til tólf ára verði lengdur að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Sjá meira