Ferðakostnaður forseta tæplega átta milljónir Haukur Viðar Alfreðsson skrifar 31. janúar 2014 14:58 Kostnaður við ferðalög forseta var tæplega átta milljónir á síðasta ári. vísir/anton
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, var alls 94 daga erlendis á síðasta ári. Nam kostnaður við embættisferðir hans tæplega átta milljónum króna. Þetta kemur fram í svari forsætisráðherra við fyrirspurnSvandísar Svavarsdóttur, þingmanns Vinstri grænna, um ferðalög forseta Íslands og maka hans. Svandís óskaði eftir svörum við nokkrum spurningum, þar á meðal hversu marga daga forseti var erlendis árið 2013, hverjar utanferða hans voru opinberar og hverjar í einkaerindum. Alls voru embættisferðir forseta 17 en í svari forsætisráðherra kemur fram að forseti hafi greitt sjálfur fyrir þær ferðir sem hann fór í einkaerindum. Dýrasta embættisferð forseta var vegna ráðstefna um norðurslóðir í Washington, funda með þingmönnum í öldungadeild Bandaríkjaþings, annarra funda í Washington og þátttöku í ráðgjafanefnd Sameinuðu þjóðanna og Alþjóðabankans um hreina orku. Kostnaður við þá ferð nam um 1,3 milljónum króna. Samanlagður kostnaður við embættisferðirnar 17 var 7.898.570 krónur. Þá greiddi embætti forseta fargjöld maka forseta í sjö ferðum sem allar voru í tengslum við embættisferðir forseta. Þar er um að ræða opinberar heimsóknir til Frakklands og Þýskalands, heimsmót íslenska hestsins í Berlín, þátttöku í málþingum og ráðstefnum í München og Davos, ráðstefnur og fundi í Washington, krýningarafmæli Karls XVI Svíakonungs og landsleik í Zagreb; alls 914.677 krónur. Enginn annar kostnaður var greiddur vegna ferða maka forseta. Svör forsætisráðherra við spurningum þingmannsins má lesa á vef Alþingis.
Mest lesið „Hann stal henni“ Erlent Ísland og Palestína gera samkomulag um samstarf Innlent Ísland ekki í fararbroddi heldur fylgi öðrum í humátt á eftir Erlent Lauma sér inn í útfarir og senda kirkjuvörðum fingurinn Innlent Arabaríki og lönd ESB kalla eftir tveggja ríkja lausn og afvopnun Hamas Erlent Engin framlög til jarðganga en óljós áform um innviðafélag Innlent Hvað á að gera um Verslunarmannahelgina? Innlent Fundu týnda brú við Suðurlandsbraut Innlent Meintur þjófur leitaði til lögreglu vegna framkvæmdastjórans Innlent Vonast til að spáin rætist ekki: Rigning og 22 metrar á sekúndu Innlent Fleiri fréttir Ísland og Palestína gera samkomulag um samstarf Fundu týnda brú við Suðurlandsbraut Engin framlög til jarðganga en óljós áform um innviðafélag Hvað á að gera um Verslunarmannahelgina? Þyrlan kölluð út vegna fjórhjólaslyss Ökumaður stöðvaður og kærður fyrir fjölmörg umferðalagabrot Lauma sér inn í útfarir og senda kirkjuvörðum fingurinn Versta sviðsmyndin, galið greiðslumat og óvæntur fundur Fimm prósent fallið fyrir ástarsvikum Halla og Björn ætla til Nýja Íslands Engin fjármögnun gereyðingarvopna á Íslandi Enn varað við svikapóstum: „Við hlökkum til að fá jákvæða svörun frá þér“ Samstarfið við Íra og Frakka tímafrekt Hefja gjaldtöku við höfnina í Stykkishólmi Ágengir ferðamenn hafi sært syrgjandi Mýrdælinga Neyðarástand á Gasa og ágengir túristar angra kirkjugesti Dóttirin í Súlunesi ákærð Vonast til að spáin rætist ekki: Rigning og 22 metrar á sekúndu Rannsaka áhrif samfélagsmiðla á heilastarfsemi barna Meintur þjófur leitaði til lögreglu vegna framkvæmdastjórans Gat ekki sannað að verkstæðið tjónaði vélina Mögulegur fyrirboði um goslok Fundaði með Guterres: Tveggja ríkja lausnin sé eina lausnin Ungir menn staðnir að því að skjóta gelkúlum á vegfarendur Enn gýs úr einum megingíg og virknin nokkuð stöðug Langtímarannsóknir skorti á áhrifum kreatíns „Þetta er auðvitað stórhættulegt“ Styttist í háþróuð gervigreindarsvindl á íslensku Setja þurfi meiri þunga í hagsmunagæslu gagnvart ESB Neyðast til að endurbyggja grunnskólann vegna myglu Sjá meira