Ný uppfinning á að bjarga grasinu Jóhannes Stefánsson skrifar 31. janúar 2014 20:48 Skessuhorn/Tómas Freyr Kristjánsson
Nýrri íslenskri uppfinningu er ætlað að koma í veg fyrir milljónatjón á golf- og knattspyrnuvöllum landsins. „Þetta leysir mjög snúið mál," segir Friðrik Tryggvason hjá Almennu umhverfisþjónustunni, sem fann upp búnaðinn. Um er að ræða gadda sem eru festir undir þungar vinnuvélar sem stingast í gegnum klakabrynju þegar ekið er yfir hana. Tilgangurinn er sá að hleypa súrefni að rotnandi grasi sem liggur undir og koma þannig í veg fyrir kalskemmdir, sem umsjónarmenn golf- og knattspyrnuvalla hafa staðið ráðþrota frammi fyrir seinustu vikurnar. Friðrik kallar uppfinninguna „Klakabanann," en hann hefur þegar sótt um einkaleyfi fyrir henni. „Við vorum ráðþrota í þessu og búnir að reyna ýmislegt. Svo fæddist þetta bara skref af skrefi," segir Friðrik. „Þetta virkar mjög vel," bætir hann við." Kalskemmdir af völdum klaka geta valdið milljónatjóni á golf- og knattspyrnuvöllum. Umsjónarmenn vallanna hafa staðið ráðþrota frammi fyrir vandanum en vegna uppfinningar Friðriks er nú lausn í sjónmáli. „Þegar við prófuðum þetta byrjaði að gjósa upp ammoníakslykt úr götunum. Þetta er sett undir þungar vinnuvélar þegar við erum komnir á klakann," segir Friðrik Friðrik er kominn í samstarf við vélsmiðjunna Héðin um smíði Klakabanans. „Það má útfæra þetta til að nota gegn kali á túnum. Þetta er mjög einfalt og í sjálfu sér ekki dýrt né erfitt í notkun. Ég vona að þetta bjargi miklum verðmætum," segir Friðrik Tryggvason.
Mest lesið Ekki boðlegt að þingið hunsi þjóðaratkvæðagreiðslu Innlent Segir dulda skattahækkun taka gildi á næsta ári Innlent Þriðji KFC-morðinginn fundinn rúmlega fjörutíu árum síðar Erlent Mesti snjór í New York í fjögur ár Erlent Dró konu eftir gangstétt og lyfti henni svo upp með hálstaki Innlent Tilhæfulaus líkamsárás í annað sinn og enginn kom til aðstoðar Innlent Maðurinn sem var næstur í röðinni hjá mormónum látinn Erlent Sakamálin sem einkenndu árið sem er á enda Innlent Þrír létust í óveðrinu Erlent Líkamsárás í miðbænum Innlent Fleiri fréttir „Gamla góða Ísland, bara betra“ Gróður farinn að grænka fyrir norðan Ferðakostnaður forsetans rúmar tuttugu milljónir Sakamálin sem einkenndu árið sem er á enda Ekki boðlegt að þingið hunsi þjóðaratkvæðagreiðslu Margfaldur þungi í loftárásum og kyntákn kveður Afbrot, fjölmiðlastyrkir og stefna Miðflokksins Segir dulda skattahækkun taka gildi á næsta ári Líkamsárás í miðbænum Dró konu eftir gangstétt og lyfti henni svo upp með hálstaki Reyndi ítrekað að stofna til slagsmála við skemmtistað Sjálfvirkir lyfjaskammtarar borgi sig tvöfalt til baka Tilhæfulaus líkamsárás í annað sinn og enginn kom til aðstoðar Keyptu aðstoð vegna leiðréttingar landsframlags og hringferðar ráðherra Frumkvæðisvinna lögreglu að loka fjórum afhendingarstöðum „Fara þarf í raunverulegar aðgerðir“ Hrindir af stað söfnun fyrir föður drengsins Kjartan sækist ekki eftir endurráðningu sem bæjarstjóri Landeldi í vexti og lögregla lokar áfengisverslunum Árekstur á Suðurlandsbraut Ekki talinn tengjast aukinni eldvirkni Handteknir grunaðir um framleiðslu fíkniefna Jarðskjálfti við Kleifarvatn Lögreglumenn eltu lausa hesta Lögregla lokaði Smáríkinu og Nýju vínbúðinni Stöðvuðu menn í ofbeldishug við landamærin Piltur skilinn eftir ber að ofan og skólaus eftir hrottafengna árás Dæmdur fyrir líkamsárás í matsalnum Engir ælupokar notaðir, þetta var núllpokaflug Hafði komið sér fyrir á háalofti hótels Sjá meira