Nafn látinnar dóttur enn í skráningarkerfi Fjölnis Haukur Viðar Alfreðsson skrifar 17. janúar 2014 13:45 Það hlýtur að vera hægt að forrita þessi fínu kerfi betur, segir Gréta Ingþórsdóttir. vísir/pjetur
Móðir stúlku sem lést úr krabbameini árið 2007 rakst á nafn hennar í flettilista þegar hún skráði aðra dóttur sína á íþróttanámskeið hjá Ungmennafélaginu Fjölni í gær. Móðirin, Gréta Ingþórsdóttir, hefur látið sig málefni krabbameinssjúkra barna varða en hún er framkvæmdastjóri SKB - Styrktarfélags krabbameinssjúkra barna. Hún segir þetta vera spark í magann og treystir sér ekki í viðtal. Gréta gaf Vísi hins vegar leyfi til að segja söguna. Hún segir að ef félagið er með tengingu við þjóðskrá sem setji inn ný börn eigi um leið að taka út látin börn. „Það hlýtur að vera hægt að forrita þessi fínu kerfi betur,“ segir Gréta á Facebook-síðu sinni en skrifstofa Fjölnis var lokuð þegar hún reyndi að hafa samband. „Þó að ég hugsi alltaf til hennar með elsku og hlýju þá er svona uppákoma líka áminning um að því miður er ekki hægt að skrá hana á nein námskeið eða eitt né neitt.“ Í athugasemdakerfinu tjá nokkrir sig sem hafa svipaða sögu að segja. Fá þeir til dæmis enn póst frá fjölmörgum fyrirtækjum stílaðan á látna fjölskyldumeðlimi, boð um að koma í læknisskoðanir og fleira.Verður kannað strax Skrifstofa Fjölnis er lokuð í dag en félagið notar skráningar- og greiðslukerfið Nóra. Það er fyrirtækið Greiðslumiðlun sem sér um kerfið. „Þetta kemur mér eiginlega í opna skjöldu,“ segir Guðmundur Árnason, verkefnastjóri hjá Greiðslumiðlun. „Ég hélt að þetta gæti ekki gerst.“ Guðmundur segist muna eftir einu sambærilegu atviki en í því tilfelli var stuttur tími liðinn frá andláti og þjóðskrá ekki uppfærð daglega eins og í dag. „Þetta er auðvitað óskaplega óþægilegt. Það verður bara að kanna þetta strax. Ég er nú fyrrverandi stjórnarmaður í Fjölni og þetta snertir mig.“
Mest lesið Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri Innlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Erlent Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Innlent Fleiri fréttir Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Skipulagt niðurbrot á réttindum launafólks hafi náð til Íslands Sjá meira