Viti sínu fjær af áhyggjum Þórhildur Þorkelsdóttir skrifar 17. janúar 2014 19:32
Íslenskur maður var á Þorláksmessu dæmdur í ellefu mánaða fangelsi í Kína, ekkert hefur spurst til hans eftir að dómurinn féll og segist bróðir hans vera viti sínu fjær af áhyggjum. Maðurinn heitir Geir Gunnarsson og er þrjátíu og eins árs. Hann hefur verið búsettur í borginni Dailan í Kína síðastliðinn tólf ár ásamt bróður sínum þar sem þeir störfuðu á skemmtistað. Í janúar 2013 lenti Geir í deilum við leigubílstjóra og sagði hann reyna að rukka hann of mikið fyrir leið sem Geir hafði margoft farið. Geir lét leigubílstjórann hafa það sem hann taldi vera eðlilegt verð og fór út úr bílnum. Leigubílstjórinn fór á eftir honum og reif í hann með þeim afleiðingum að jakki hans rifnaði. Þá sló Geir bílstjórann kjaftshöggi. Í kjölfarið komu fjórir lögreglumenn, handtóku Geir og tóku af honum vegabréfið. Bílstjórinn höfðaði mál og nú á Þorláksmessu féll dómur. Arnar Gunnarsson, bróðir Geirs, segir dóminn hafa komið sér í opna skjöldu, þar sem yfirleitt nægi að borga sektir í slíkum málum. Geir fékk aðeins eitt símtal áður en hann hóf afplánun og hefur fjölskylda hans ekki fengið neinar fréttir af honum síðan. „Maður er náttúrlega bara viti sínu fjær. Við getum ekki hringt í hann, sent honum bréf eða föt. Við höfum ekki hugmynd um hvernig við getum komist í samband við hann. Geir er einn í einhverju fangelsi þar sem enginn skilur hvað hann segir,“ segir Arnar. Faðir Geirs og Arnars er staddur í Kína og hefur verið að vinna í málinu ásamt Stefáni Skjaldarsyni, sendiherra Íslands þar í landi, en fjölskyldan vill áfrýja dómnum. Þá hefur Utanríkisráðuneytið óskað eftir leyfi frá kínverskum fangelsismálayfirvöldum til að heimsækja Geir, en engin svör hafa borist.
Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Rubio: Ísland í miðjunni Innlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Innlent Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Innlent Bíði og bíði eftir Bjarna Innlent Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Fleiri fréttir Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Sjá meira