Segir Sigurjón hafa verið beittan pyntingum 8. janúar 2014 07:15 Sigurjón Þ. Árnason og Sigurður G. Guðjónsson.
Sigurjón Þ. Árnason, fyrrverandi bankastjóri Landsbankans, hefur verið beittur andlegum pyntingum, eða í það minnsta ómannúðlegum meðferðum, með því að halda honum svo árum skipti föngnum í réttarstöðu sakbornings. Á meðan reyna stjórnvöld að hanna á hann refsiverða háttsemi og eru á sama tíma sígjammandi um sök hans og refsingu í fjölmiðlum. Þetta kemur fram í grein sem Sigurður G. Guðjónsson, lögmaður Sigurjóns, skrifar og birtir á Vísi í dag. Tilefnið er að í dag mun Sigurður láta reyna á fyrir héraðsdómi hvort ákæru á hendur Sigurjóni verði vísað frá dómi. Sigurjón er ákærður ásamt sautján öðrum fyrrum starfsmönnum Landsbankans fyrir markaðsmisnotkun með hlutabréf í Landsbankanum á árunum 2003 til 2008. Kröfuna um frávísun byggir Sigurður á því að við rannsókn málsins hjá embættis sérstaks saksóknara hafi Sigurjón ekki notið þeirrar málsmeðferðar sem réttarríkið á að búa þegnum sínum. Sigurjón segir að ákæran eigi rót sína að rekja til rannsóknar og kæru Fjármálaeftirlitsins, sem hafi verið vanhæft til meðferðar málsins frá upphafi sem og forstjóri þess á þeim tíma, Gunnar Andersen. „Rannsókn sakargifta á hendur Sigurjóni Þ. Árnasyni ber þess vott að Ísland eftir hrunið í október 2008 geti vart talist réttarríki, nema dómstólar vísi ákæru á hendur honum frá dómi,“ segir Sigurður í greininni. „Ég mun líka örugglega vera minntur á það að ég sé lagatæknir útrásarvíkinga, ríkisbubba og hafandi auk þess verið í stjórn Glitnis banka hf. þegar hann féll. Kannski fæ ég nafnlausnar hótanir um limlestingar og þaðan af verra, eins og stöku aðilar hafa talið nauðsynlegt að senda mér þegar ég hef tjáð mig um hrunmál, og örugglega fæ ég hellings skítkast í athugasemdakerfum netmiðla. Mér er slétt sama. Ég er hins vegar tilbúinn í málefnalega umræðu.“ Greinina í heild sinni má lesa hér.
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda Innlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Innlent NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Erlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Fleiri fréttir Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Sjá meira