Þorir þú að vera fatlaður? Baldvin Þormóðsson skrifar 19. apríl 2014 00:01 Góðhjartaðir nemendur í Háskólanum í Reykjavík safna fyrir Reykjadal. vísir/daníel „
Það er búið að vera mjög gefandi og skemmtilegt verkefni að skipuleggja þetta,“ segir Áslaug Ármannsdóttir en hún stendur að fjáröflunarviðburði í Laugardagshöll fimmtudaginn 24. apríl á milli 13 og 17. Allur ágóði viðburðarins rennur óskertur til Reykjadals en það eru sumarbúðir fyrir fötluð börn og ungmenni. „Við erum nemendur í mastersnámi í verkefnisstjórnun í Háskólanum í Reykjavík og hluti námsins er að gera verkefni sem hefur samfélagslega skírskotun,“ segir Áslaug en ásamt henni standa að viðburðinum þau Torfi Dan Sævarsson, Sigurður T. Valgeirsson, Gísli Rúnar Guðmundsson, Hafdís Huld Björnsdóttir og Rebekka Helga Aðalsteinsdóttir. „Þetta er keppni sem fyrirtæki geta skráð sig í en keppt verður í tveimur íþróttagreinum,“ segir Áslaug. „Annars vegar hjólastólaspretti og hins vegar hjólastólahandbolta.“ Áslaug ítrekar að öllum sé velkomið að koma. „Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir verður kynnir og Adolf Ingi og Sigurbjörn Árni verða lýsendur íþróttagreinanna,“ segir Áslaug. „Solla Stirða verður einnig á staðnum ásamt Hvata hvolpi og síðan verður eitthvað af starfsfólki Reykjadals með stöðvar þannig að hægt verður að fá andlitsmálningu eða jafnvel að prófa að vera í hjólastól.“Viðburðurinn er unninn í samstarfi við Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra en félagið rekur sumarbúðirnar í Reykjadal. Fyrirtæki geta skráð sig með því að senda tölvupóst á netfangið hvati@slf.is en einnig er hægt að styrkja starfsemina með því að hringja í eftirfarandi símanúmer: 902-0010 fyrir eitt þúsund krónur, 902-0030 fyrir þrjú þúsund krónur og 902-0050 eru fimm þúsund krónur.
Mest lesið Tólf barna móðir selur sveitadraum Lífið Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Lífið Stjörnuleikur Góa og Unnar bjargar Höggi Gagnrýni Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Lífið Ölvuðu Íslendingarnir í Kristjaníu stóðu upp úr Tónlist Góðgerðartreyja til styrktar Ingvari hönnuð af 66° Norður Tíska og hönnun Eignaðist barn, missti ömmu sína og erfði púðlusafnið Menning Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Lífið Ranglega greind með MS-sjúkdóm Lífið Glee snýr aftur Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Sjá meira