Stjórnarmenn RÚV ohf funda með starfsmönnum Jakob Bjarnar skrifar 9. janúar 2014 13:55 Starfshópur stjórnar vill heyra í starfsmönnum RÚV ohf. og gerir það nú klukkan fjögur.
Valdir starfsmenn Ríkisútvarpsins funda nú á eftir með starfshópi stjórnar stofnunarinnar. Þeir sem skipa þann starfshóp eru Guðrún Nordal, sem fer fyrir hópnum, Sigríður Hagalín, Björg Eva Erlendsdóttir, Magnús Geir Þórðarson og Björn Blöndal. Eftir því sem næst verður komist stendur til að heyra ofan í starfsmenn og hvort þeir hafi eitthvað til málanna að leggja til úrbóta, en eftir fjöldauppsagnir fyrir rúmum mánuði, og svo uppsögn útvarpsstjóra Páls Magnússonar, hefur verið lágt risið á starfsmönnum; einkum þeim á Rás 1.Lísa Pálsdóttir er dagskrárgerðarmaður á Rás 1 og hún talar um ófremdarástand, enda hafi verið mikið klofið úr hópnum, 11 eða því sem næst helmingur starfsmanna Rása 1. „Það er ófremdarástand hérna. Skringilegt andrúmsloft enda starfsemin lömuð; með einn fót. Vantar alla tónlistarstjórn til dæmis og skrítið hvernig þetta var hugsað og að þessu staðið. Vantar allt tónlistarútvarp á Rás 1,“ segir Lísa. Hún segir stöðuna einsdæmi í sjálfu sér: „Bráðabirgðaútvarpsstjóri, bráðbirgðadagskrárstjóri, fjármálastjórinn á burtleið... þannig að þetta er skrítið ástand.“ Ekki eru það þó einungis starfsmenn Rásar 1 sem við verður rætt. Ólafur Páll Gunnarsson mun mæta á fundinn fyrir hönd Rásar 2. Hann segist ekkert vita um þetta og telur ekki að með þessu sé stjórnin að fara út fyrir lögskipað hlutverk sitt og sé hlutast til um dagskrárstjórnun – en þetta er vissulega eintakt. Ólafur Páll hefur ekki heyrt af fundum starfsmanna og stjórnar þau rúmu tuttugu ár sem hann hefur starfað hjá stofnuninni. „Ég held að þetta snúist um að þau heyri einhverjar hugmyndir um stefnu og forgangsröðun. Óformlegt spjall. Talsverð skörð hafa verið höggvin í framlínuna hjá okkur, ekki hægt að horfa fram hjá því.“ Sigríður Hagalín hefur verið einskonar tengiliður stjórnar og starfsmanna enda hún bæði í stjórn og starfsmaður. Ekki náðist í Sigríði fyrir birtingu fréttarinnar.
Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Rubio: Ísland í miðjunni Innlent Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Innlent Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Fleiri fréttir Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Sjá meira