Bálreiðir framhaldsskólakennarar funda í fyrramálið Heimir Már Pétursson skrifar 2. febrúar 2014 19:33
Formaður Félags framhaldsskólakennara segir samninganefnd ríkisins hafa næstu viku til að skýra afstöðu sína við samningaborðið. Eftir það taki kennarar ákvörðun um hvort farið verði í aðgerðir. Bálreiðir framhaldsskólakennarar boða til samstöðufunda í framhaldsskólum um allt land í fyrramálið og á meðan liggur kennsla niðri. Formaður þeirra segir að línur verði að skýrast við samningaborðið á allra næstu dögum en að öðrum kosti fari kennarar að undirbúa aðgerðir. Það hefur legið fyrir í meira en mánuð að Félag framhaldsskólakennara sættir sig ekki við kjarasamning á sömu nótum og samið var um nýverið á almennum markaði. Formaður Félags framhaldsskólakennara segir þá hafa dregist aftur úr sambærilegum stéttum hjá hinu opinbera mörg undanfarin ár og nú sé þolinmæðin á þrotum. Kjaradeilu framhaldsskólakennara við ríkið var vísað til Ríkissáttasemjara síðast liðinn miðvikudag eftir margra vikna árangurslausar viðræður og segir formaðurinn þá langt í frá sátta við stöðu viðræðnanna. „Kennarar eru bálreiðir yfir því hvernig ástandið er í stöðu samningamálanna og yfir andvaraleysi, stefnuleysi stjórnvalda og stjórnmálamanna til margra ára gagnvart kennarastarfinu, launum fyrir kennarastarfið og rekstri skólanna,“ segir Aðalheiður Steingrímsdóttir formaður Félags framhaldsskólakennara. Formenn kennarafélaganna boða til samstöðufunda í öllum framhaldsskólum landsins klukkan korter yfir ellefu í fyrramálið og fellur kennsla niður á meðan. „Til þess að ræða þessa alvarlegu stöðu og ég sé ekki betur en menn ætli að bregðast mjög vel við því,“ segir Aðalheiður. Búast megi við hörðum ályktunum að þeim fundum loknum. Aðalheiður segir að tíminn við samningaborðið sé að renna út og það styttist í að kennarar meti hvort farið verði í aðgerðir eins og verkfall. „Og þá er ég að tala um næstu daga og næstu viku. Í kjölfarið munum við eiga samræður við formenn kennarafélaganna í skólunum og trúnaðarmenn til að gera þeim grein fyrir stöðunni og okkar mati á henni,“ segir Aðalheiður Steingrímsdóttir formaður Félags framhaldsskólakennara.
Mest lesið Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Leggjast gegn því að útivistartími 10 til tólf ára verði lengdur að vetri Innlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Erlent Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Innlent Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Innlent Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Innlent Fleiri fréttir Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Leggjast gegn því að útivistartími 10 til tólf ára verði lengdur að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Sjá meira