Þjálfari óskast hjá ÍA Stefán Árni Pálsson skrifar 19. júní 2013 07:00 Margir héldu að Þórður myndi taka við liðinu af nafna sínum en hann þvertekur fyrir það. fréttablaðið/valli
Þórður Þórðarson lét af störfum sem þjálfari knattspyrnuliðs ÍA í gær og óljóst er hver tekur við liðinu. Pétur Pétursson, aðstoðarþjálfari KR, hefur nú þegar hafnað starfinu. Stjórn ÍA ætlar að flýta sér hægt í leit að eftirmanni Þórðar. „Þetta kom upp á borð til okkar á mánudagskvöldið,“ sagði Þórður Guðjónsson, framkvæmdastjóri ÍA, í samtali við Fréttablaðið í gær. „Þórður [Þórðarson] vildi stíga til hliðar þar sem liðið er aðeins með þrjú stig eftir sjö leiki. Þórður [Þórðarson] er það mikill Skagamaður að hann taldi rétt að fá annan að verkinu eins og er. Það var hans mat að það væri betra fyrir liðið að fá annan mann í starfið.“ Fram undan er mikil fallbarátta hjá Skagamönnum en liðið mætir Keflavík, Víkingi Ó., Þór og Fylki í næstu fjórum umferðum Pepsi-deildar karla og því að duga eða drepast fyrir þá gulu. Skagamenn mæta Blikum annað kvöld í 16-liða úrslitum Borgunarbikarsins. „Við erum að fara í eins konar úrslitakeppni í næstu leikjum og barátta um sæti okkar í deildinni fram undan.“Þórði var ekki bolað út „Það var samt sem áður mikil ánægja með störf Þórðar í stjórn knattspyrnudeildar ÍA. Liðið lék vel gegn KR í síðustu umferð og mikill viðsnúningur á spilamennsku ÍA. Það var engin pressa af hálfu félagsins að hann myndi láta af störfum, þetta var alfarið hans ákvörðun.“ „Við erum í raun ekki í vandræðum þegar kemur að þjálfurum á Akranesi en eins og staðan er í dag munu Dean Martin, aðstoðarþjálfari liðsins, og Jón Þór Hauksson afreksþjálfari stjórna liðinu á fimmtudaginn.“ Stjórn knattspyrnudeildar ÍA leitar nú að nýjum þjálfara til að taka við liðinu. „Við erum að skoða í kringum okkur en ætlum að flýta okkur hægt. Hvort sem við finnum mann í stöðuna út tímabilið eða til langtíma þá verður það bara að koma í ljós en það er ekkert leyndarmál að við erum að leita okkur að þjálfara. Við settum í raun og veru saman lista í gærkvöldi og ætlum svo að vinna okkur út frá því, hlera menn og kanna þeirra stöðu.“ „Við höfum ekki hafið neinar formlegar viðræður en erum aftur á móti búnir að heyra í nokkrum varðandi starfið. Einn þeirra er Pétur Pétursson sem gaf ekki kost á sér í verkefnið.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Ísland í átta liða úrslit eftir ótrúlega endurkomu Körfubolti „Ég hef aldrei séð Stjörnuna spila svona“ Íslenski boltinn Aðeins sjö lið í heiminum eytt meira en nýliðar Sunderland Enski boltinn Sara Björk áfram í Sádi-Arabíu Fótbolti „Ég er mjög þreyttur“ Íslenski boltinn „Mæli með að dómarar nái þessum hraða með boltann“ Íslenski boltinn Uppgjörið: Afturelding - Vestri 1-1 | Deila með sér stigunum Íslenski boltinn Dildó-faraldurinn heldur áfram í WNBA Körfubolti Hólmbert Aron til Suður-Kóreu Fótbolti Leiknir selur táning til Serbíu Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Ég hef aldrei séð Stjörnuna spila svona“ „Ég er mjög þreyttur“ Uppgjörið: Afturelding - Vestri 1-1 | Deila með sér stigunum „Mæli með að dómarar nái þessum hraða með boltann“ Uppgjörið: Fram - Stjarnan 1-1 | Allir ósáttir eftir jafntefli Leiknir selur táning til Serbíu Markametið hans Patricks Pedersen í tölum Sjáðu Pedersen bæta metið og Skagamenn jafna með skrýtnum mörkum Uppgjör: ÍA - Valur 2-2 | Skaginn náði í stig með ótrúlegu marki Hansen hamingjusamur í Víkinni næstu árin Tryggvi þurfti að bíða í 257 daga eftir að bæta metið „Margir sem voru tilbúnir að koma honum fyrir kattarnef fyrir mig“ Natasha með slitið krossband Kári reynir að hjálpa HK upp um deild „Báðir endar vallarins mættu vera betri“ „Skemmtilegra þegar vel gengur“ Uppgjörið: Valur - Breiðablik 0-3 | Létt verk fyrir meistarana Sjáðu umdeilda vítadóminn og sigurmarkið sem var dæmt af Sjáðu tvennu Sigurðar og snögg svör Víkinga Tómas Bent seldur til Skotlands Sigurður grautfúll: „Líður eins og við höfum tapað þessum leik“ „Dómur af himnum ofan“ Þurfa þrjú stig „ef við ætlum ekki að lenda í veseni“ „Ég veit ekkert hverjir þetta voru“ „Alltaf gaman að skora fyrir uppeldisfélagið“ Uppgjörið: FH - Víkingur 2-2 | Forza ragazzi! Uppgjör: Breiðablik - KA 1-1 | Umdeild vítaspyrna tryggði Íslandsmeisturunum stig „Lélegasti leikurinn okkar í sumar“ „Hefðum ekki átt að tapa þessum leik“ „Ég vona að tjaldið mitt sé ennþá þarna, það verður gaman í kvöld“ Sjá meira