Almar tók við af Jóni Rúnari Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 19. júní 2013 13:23 Almar Guðmundsson. Mynd/Vilhelm
Almar Guðmundsson, formaður knattspyrnudeildar Stjörnunnar, er nýr formaður Íslensks toppfótbolta en aðalfundur félagsins var haldinn í gær. Íslenskur toppfótbolti er samtök félaga í efstu deild á Íslandi og vinna því fyrst og fremst að sameiginlegum hagsmunum þeirra en einnig íslenskri félagsliðaknattspyrnu í heild sinni. Jón Rúnar Halldórsson, FH, stígur því til hliðar en hann hafði verið formaður frá stofnun. Björn Einarsson, Víkingi, fer einnig úr stjórn en Borgildur Sigurðardóttir, Breiðabliki, og Jónas Gestur Jónasson, Víkingi Ólafsvík, koma inn í þeirra stað. Öll eru formenn knattspyrnudeilda í sínum félögum. Almar segir í samtali við Vísi að það hafi ekki ríkt ósætti við störf fyrri stjórnar. „En svona starf snýst alltaf um áherslur. Þessi félagsskapur er enn að slíta barnsskónum. Við erum búin að ná ákveðnum árangri og við viljum halda því áfram. Við viljum einnig tryggja að samstarf við KSÍ verði gott.“ Almar segir að í upphafi hafi samband félagsins við KSÍ verið stirt. „Það var upplýsingavandi í upphafi og menn töluðu ekki nógu vel saman. En það er liðin tíð og við teljum að þetta sé í góðum farvegi.“ „Það er mikilvægt að menn séu samhentir. Við erum ekki komnir alla leið en við skynjum ekki annað en að það sé vilji til að taka þau málefni sem okkur varða lengra.“
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport Þjálfari Hákons grét eftir leik Fótbolti „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Enski boltinn Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Fjórtán ára drengur gaf sig fram við lögreglu Sport Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Fleiri fréttir Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Sjá meira