Sprautufíklar verst staddi sjúklingahópurinn á Íslandi Samúel Karl Ólason skrifar 24. október 2013 16:30 „
Sprautufíklar eru jafnvel verst staddi sjúklingahópurinn í okkar samfélagi,“ segir Helgi Gunnlaugsson prófessor í félagsfræði. Hann segir fíkniefnaneytendur á Íslandi í raun skiptast í tvo hópa. Í öðrum hópnum eru frístundaneytendur, að mestu ungt fólk, sem vex á endanum upp úr neyslunni og veldur í raun ekki miklum vandamálum í samfélaginu. Í hinum hópnum eru einstaklingar sem misnota eiturlyf eins og sprautufíklar. „Þó fíknin fari ekki í manngreinarálit þá eru ákveðnir áhættuþættir sem við sjáum hjá þeim hópi einstaklinga sem misnota fíkniefni eins og til dæmis sprautufíklar. Margir hafa glímt við mikin félagslegan vanda.“ „Þetta er hópur sem er mjög illa settur í íslensku samfélagi og þá getur fólk sagt; Bíddu, er það ekki vegna fíkniefnaneyslunnar? Jú, hún heldur hópnum kannski niðri, en það er ef til vill ekki rót vandans. Þetta er hópur sem er illa settur félagslega í okkar samfélagi. Niðurstaðan er sú að þetta er jafnvel verst setti hópur sjúklinga í okkar samfélagi.“ Þetta mun Helgi fjalla um í fyrirlestri í sem hefst klukkan níu í fyrramálið og er í stofu 201 í Odda. Fyrirlesturinn er hluti af Þjóðarspeglinum og ber heitið „Fíkniefnavandinn á Íslandi: Þróun neyslu, neyslumynstur og kostir í stefnumótun.“ Helgi mun einnig halda fyrirlestur með Jónas Orra Jónassyni sem heitir: „Þróun viðhorfa Íslendinga til afbrota: Samanburður frá 1989-2013.“ „Íslendingar telja neyslu fíkniefna vera alvarlegasta vandamál afbrota og hafa gert það alltaf í 25 ár. Reyndar gerðist það í fyrsta skipti, að á þessu ári fóru kynferðisbrot aðeins uppfyrir neyslu fíkniefna.“ Helgi segir að á öllum mælingum frá 1989 sé neysla fíkniefna númer eitt. „Það kemur heim og saman við fréttaflutning og umræðu í samfélaginu um að vandinn sé mjög stór. Menn líta ekki bara til neyslunnar heldur hafa áhyggjur að fíkniefnaneysla sé ástæða afbrota. Að neysla sé miðpunktur afbrota landans á Íslandi.“ Helgi segir fólk nefna í miklu mæli að ástæða þess að fólk leiðist út í glæpi vera áfengis og fíkniefnaneyslu. „Íslendingar sjá fíkniefni vera alvarlegasta vanda afbrota á Íslandi og þeir álíta að fíkniefnaneyslan sé rót að öðrum afbrotum eins og ofbeldi og auðgunarbrotum. Þetta sýnir hvað fíkniefni eru miðlæg í hugsun okkar um afbrot á Íslandi. Þannig að þessi tvö erindi falla mjög vel saman,“ segir Helgi. Í máli sínu ætlar Helgi einnig að sýna fram á að á Íslandi hefur lengi verið mikill ótti við fíkniefni. „Ég sýni umfjöllun úr Morgunblaðinu frá 1979 þar sem notast er við stríðsfyrirsagnir á baksíðunni og í blaðinu er vegleg umfjöllun um hvað fíkniefnavandinn hafi þá verið stórt vandamál. Það væri sífellt alvarlegra og ungmenni deyi vegna fíkniefnaneyslu, að heróín sé komið á markaðinn og að yfir 4.000 séu á skrá lögreglunnar vegna fíkniefna.“ „Menn hafa örugglega orðið slegnir fyrir 34 árum síðan. Ég er að reyna að sýna hvað þetta nær langt aftur og hvað umfjöllunin sé dramatísk. Afstaða Íslendinga til fíkniefnavandans er að hann sé mikill og það er mikill ótti við fíkniefnin,“ segir Helgi. Áhugasamir eru hvattir til að mæta á þennan áhugaverða fyrirlestur klukkan níu í fyrramálið.
Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Innlent Biskup í fangelsi fyrir brot gegn drengjum Erlent Fleiri fréttir Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Sjá meira