Þétt dagskrá hjá Danadrottningu Jón Júlíus Karlsson skrifar 12. nóvember 2013 11:51 Margrét II Danadrottning. Mynd/AFP
Margrét Þórhildur Danadrotting kemur til landsins í dag. Heimsókin hefst á kvöldverðarboði á Bessastöðum sem forseti Íslands heldur henni til heiðurs. Meðal gesta verða ráðherrar í ríkisstjórn Ísland ásamt íslenskum og dönskum fræðimönnum sem unnið hafa á Stofnun Árna Magnússonar í Reykjavík og í Danmörku. Þétt dagskrá verður hjá Danadrottningu á morgun og hefst hún í Þjóðmenningarhúsinu kl. 10:40 þar sem drottningunni verður afhent fyrsta eintakið af tveggja binda verki Jóns Þ. Þórs og Guðjóns Friðrikssonar um sögu Kaupmannahafnar, höfuðstaðar Íslands í 500 ár. Að því loknu skoðar hún handrit í húsinu með leiðsögn Guðrúnar Norðdal, forstöðumanns Stofnunar Árna Magnússonar. Klukkan 13:30 hefst athöfn í hátíðasal Háskóla Íslands þar sem háskólarektor Kristín Ingólfsdóttir tekur á móti drottningu. Þar flytur Annette Lassen fyrirlestur um Árna Magnússon og einnig flytja ræður Illugi Gunnarsson mennta- og menningarmálaráðherra og Guðrún Nordal. Klukkan 14:40 heimsækir Margrét drottning Hörpu og skoðar hana í fylgd Halldórs Guðmundssonar, forstjóra Hörpu. Klukkan 16:00 er drottningin viðstödd opnun sýningar í Gerðarsafni á Teiknibókinni íslensku; Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra opnar sýninguna en Guðbjörg Kristjánsdóttir forstöðumaður safnsins fylgir drottningu um sýninguna og segir frá bókinni. Klukkan 19:30 hefst í Þjóðleikhúsinu hátíðardagskrá í tilefni af 350 ára afmæli Árna Magnússonar og geta fjölmiðlamenn verið viðstaddir þar.
Mest lesið Banaslys á Hvolsvelli Innlent Vinum hans ekki litist á blikuna Innlent Sumarbústaðaeigendur geti skotið upp flugeldum annars staðar Innlent Veki furðu að bílaleigubílar séu ekki á nagladekkjum Innlent Karólína Helga býður sig fram gegn sitjandi oddvita Innlent Tekur stóra skammta af magnýl og leiðist að hreyfa sig Erlent Fyrsta fórnarlambið nafngreint Erlent Segjast hafa sviðsett aftöku og hirt verðlaunaféð af Rússum Erlent Kveður klettinn í lífi sínu eftir skyndileg veikindi Innlent Barist á götum úti í Íran fimmta daginn í röð Erlent Fleiri fréttir Telur nær öruggt að fleiri hundar muni týnast Dæmi um að fólk hafi flúið upp í sveit Þurfi að sannfæra flokkinn Sex tíma leikskóladvöl nú gjaldfrjáls í Hafnarfirði Neytendur eigi meira inni eftir eldsneytislækkanir á nýju ári Hafna beiðni manns sem braut kynferðislega á stjúpdóttur Banaslys á Hvolsvelli Sumarbústaðaeigendur geti skotið upp flugeldum annars staðar Karólína Helga býður sig fram gegn sitjandi oddvita Mikill meirihluti vill lögfesta rétt barna til leikskólavistar Veki furðu að bílaleigubílar séu ekki á nagladekkjum Eldur í bíl við Breiðhellu Vinum hans ekki litist á blikuna Pétur verið lengur en hún í stjórnmálum Fluttur á sjúkrahús eftir slys í Hrútafirði Pétur fer á móti borgarstjóra og vill fyrsta sætið í Reykjavík Kveður klettinn í lífi sínu eftir skyndileg veikindi Hitnar undir feldi Péturs Þessi fjórtán hlutu fálkaorðuna á nýársdegi „Líðan barna nú mun móta sögu og styrk Íslands á næstu árum“ Fleirum þykir Flokki fólksins ganga illa að hrinda málum í framkvæmd Fimmtán leituðu á bráðamóttöku vegna flugeldaslysa Fjögurra stiga skjálfti í Bárðarbungu: „Stærsti skjálftinn á árinu“ Hvetur Íslendinga til að hafna „svartagallsrausi“ Ríflega tuttugu útköll vegna eldsvoða Vill annað sætið hjá Samfylkingunni í borginni Kveðst hlakka til að mæta aftur til starfa Á bak við tjöldin: „Með alls konar exit plans, trúið mér“ Fyrsta barn ársins kom í heiminn klukkan 00:24 Miðahafi á Íslandi vann 642 milljónir í Víkingalottói Sjá meira