Fangar á Litla hrauni í eiturlyfjavímu María Lilja Þrastardóttir skrifar 12. nóvember 2013 18:30
Ófremdarástand hefur skapast á Litla hrauni síðustu daga en mikið af flogaveikislyfinu Rivotril og Suxinutin virðist vera þar í umferð. Hópur fanga, sem situr inni fyrir alvarlega refsiglæpi, hefur misnotað lyfin síðustu daga og samkvæmt heimildum fréttastofu verið í stjórnlausri vímu. Hegðun þeirra mun meðal annars vera rakin til áfalls sem þeir urðu fyrir vegna andláts fangans Steinars Aubertssonar en hann lést úr of stórum skammti eiturlyfja á laugardagsmorgun. Fíkniefnaneysla inni á Litla hrauni er vandamál. Færst hefur í aukana að lyfseðilsskyld lyf séu notuð af föngum fyrir vímu en lyfin berast fyrst og fremst inn með aðstandendum og vinum. Fangi getur fengið heimsóknir í fangelsi, eigi sjaldnar en vikulega allt eftir aðstæðum í fangelsinu hverju sinni. Fangaverðir hafa litlar heimildir þegar kemur að fíkniefnaleit á heimsóknargestum fangelsa nema að rökstuddur grunur sé um refsiverða háttsemi.Í lögum um fullnustu refsinga segir:„Heimsóknir til fanga skulu almennt fara fram án eftirlits. Forstöðumaður fangelsis getur ákveðið að heimsókn skuli fara fram undir eftirliti ef nauðsynlegt þykir til að viðhalda góðri reglu og öryggi í fangelsi eða til að koma í veg fyrir refsiverðan verknað. Slík ákvörðun skal bókuð og rökstudd.“ Með rökstuddum grun er átt við merkingar fíkniefnahunda eða aðrar sterkar vísbendingar. Slíkt er þó í þessu tilfelli afar flókið þar sem lyfseðilsskyld lyf eru lyktarlaus og hundarnir nema þau því ekki. Algengasta smygleið lyfjanna er í gegnum endaþarm eða leggöng en dæmi er um að gestir hafi notað bleyju ungabarns til þess að smygla inn lyfi. Páll winkel, fangelsismálastjóri vildi ekki tjá sig um neyslu fanga inni á Litla Hrauni að svo stöddu.
Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Innlent Biskup í fangelsi fyrir brot gegn drengjum Erlent Fleiri fréttir Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Sjá meira