Gillz spilar á sumarstúlkukeppni á Selfossi Þórhildur Þorkelsdóttir skrifar 10. júlí 2013 17:00 Óli, Egill og Ásgeir fara í eina sæng á Stuðlagaballi á Selfossi.
Skemmtanafyrirtækið Agent.is mun standa fyrir svokölluðu Stuðlagaballi í Hvíta húsinu á Selfossi næstkomandi laugardag. Egill „Gillz“ Einarson verður aðal plötusnúður kvöldsins, en hann spilar undir nafninu DJ Muscleboy þessa dagana. Óli Geir sér um að hita upp og tekið er sérstaklega fram á Facebook-síðu viðburðarins að Ásgeir Kolbeinsson sé sérlegur ráðgjafi þeirra félaga. Fyrr um kvöldið mun svo fegurðar- og framkomukeppnin Sumarstúlka Selfoss fara fram í Hvíta húsinu, en þetta verður í sjötta sinn sem keppnin er haldin. Árleg sumarstúlkukeppni er einnig haldin í Vestmannaeyjum. „Þetta snýst allt um að hafa gaman og það getur hver sem er tekið þátt í Sumarstúlkunni.Það er ekki valið inn eftir útliti eða þyngd, fyrstu tíu til að skrá sig fá einfaldlega að taka þátt,“ segir Gunnar Karl Ólafsson, umsjónarmaður keppninnar. Hann segir að keppnin sé ekki venjuleg fegurðarsamkeppni heldur sé um sumarskemmtun að ræða. „Stelpurnar læra að koma fram og labba á pallinum, en þetta er bara mjög góður vettvangur fyrir þær til að koma fram og vekja athygli á sér. Þetta er miklu frekar framkomukeppni heldur en fegurðarkeppni og ég myndi til dæmis ekki líkja þessu við Ungfrú Suðurland, sem snýst um allt aðra hluti.“ segir Gunnar jafnframt. Keppnin hefur verið haldin við hin ýmsu tilefni í gegnum tíðina, en ákveðið var að samtvinna hana við Stuðlagaballið í ár. Egill Gillz og Óli Geir munu sjá um að dæma keppnina.
Mest lesið Stjörnulífið: Sjö ár af stanslausri ást Lífið Áslaug Arna mætti með nýja kærastann Lífið Margrét og Ísak Ernir gengu í það heilaga Lífið „Hræðilegt að sjá ofbeldið sem ég beitti mig“ Lífið Stjörnum prýddur gestalisti og Billie Eilish í glænýju hlutverki Lífið Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Lífið Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Lífið Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Lífið Dorrit missti aðgang á forrit Lífið Krakkatía vikunnar: Skyr, knörr og rauðbrystingur Lífið Fleiri fréttir Stjörnulífið: Sjö ár af stanslausri ást Stjörnum prýddur gestalisti og Billie Eilish í glænýju hlutverki Áslaug Arna mætti með nýja kærastann Margrét og Ísak Ernir gengu í það heilaga „Hræðilegt að sjá ofbeldið sem ég beitti mig“ Krakkatía vikunnar: Skyr, knörr og rauðbrystingur Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Kjósendur á lokasprettinum: „Ég bara gleymdi þessu“ Dorrit missti aðgang á forrit Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Dolly skildi eftir sig lag fyrir hundrað ára afmælið Fréttatía vikunnar: Dolly, ESB og malaría Nadía Atla og Arnar Freyr hætt saman Þau sjá um Áramótaskaupið í ár Stórglæsilegt einbýlishús á Arnarnesi til sölu Afmælispartý Bylgjunnar í beinni Hvað kýs fræga fólkið? Bylgjan heiðraði goðsögnina Þorgeir Hvað veistu um… Dolly Parton? Jakob Smári útnefndur bæjarlistamaður Mosfellsbæjar Birta Líf og Gunnar Patrik hætt saman Doppudrottningin Yayoi Kusama er látin Neðanjarðarlestin endalaus uppspretta skrítinna atvika Camilla Rut og Valgeir hafa slitið trúlofuninni „Það færist skuggi yfir manneskju sem endar með því að hann rænir hana lífinu“ Alræmt hús á Túngötu til sölu Leitaði á náðir Dolly Parton á erfiðum tímum Lést í kjölfar krabbameinsgreiningar Sigraði hundahlaupið með hundinn í pössun Sjá meira